fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Ólafur birtir ræðuna sem Steingrímur bannaði: „Við áttum að fá fimm mínútur. Of mikið að dómi forseta“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 22. janúar 2019 09:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason, sem eru utan þingflokka eftir brottrekstur þeirra úr Flokki fólksins fyrir þátt sinn í Klaustursmálinu, fengu ekki úthlutuðum ræðutíma þegar Alþingi hófst að nýju í gær eftir jólafrí, eins og Eyjan greindi frá.

Ólafur birti ræðu sína þess í stað á Facebook og baunar á forseta Alþingis í leiðinni:

„Ræðan sem ekki mátti flytja á Alþingi í dag. Steingrímur J. sagði nei þótt skrifstofa Alþingis hefði gengið frá málinu við okkur Gauta. Við áttum að fá fimm mínútur. Of mikið að dómi forseta.“

Í ræðu sinni talar Ólafur um mikilvægi kjarasamninga og að vel takist til, verðtrygginguna, skattamál, þörf á hjúkrunarrýmum og upprunaábyrgðir raforku.

Ræðuna má lesa í heild sinni hér að neðan:

Herra forseti.

Ég tala hér fyrir hönd tveggja þingmanna utan flokka sem hafa með sér samstarf, okkar háttvirts þingmanns Karls Gauta Hjaltasonar.

Á komandi vikum og mánuðum er mikilvægt að vel takist til um kjarasamninga. Þeir mega ekki vera fallnir til að magna upp verðlagsþróun heldur þurfa að leggja grunn að nýrri framfarasókn. Verkalýðshreyfingin leggur áherslu á að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin. Þingsályktunartillaga mín um skattleysi lægstu tekna sýnir fram á að hægt er að létta sköttum af lægstu tekjum upp að 300 þúsund krónum, t.d. með þriggja ára áætlun, en slíkar tekjur duga ekki fyrir framfærslu samkvæmt opinberum viðmiðum. Bera má tillöguna saman við tillögu sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram fyrir kosningarnar 2017. Kostnaðarmunur milli leiðanna er minni en ætla mætti og skýrist af flutningi skattbyrðar milli tekjuhópa.

Frá hruni til 2017 hafa hátt í 10 þúsund fjölskyldur misst heimili sín eftir nauðungarsölur vegna gjaldþrota og sölu til kröfuhafa. Þá er ótalinn sá fjöldi sem rekja má til nauðasamninga, sértækrar skuldaaðlögunar og annarra slíkra þátta. Ekki færri en 30 þúsund manns eða 10% þjóðarinnar hafa hrakist af heimilum sínum. Frá hruni hafa þrjú þúsund manns orðið gjaldþrota og árangurslaus fjárnám eru nálægt 117 þúsund talsins.

Þeir sem draga árangurslaust fjárnám á eftir sér fá hvorki lán til íbúðarkaupa eða eru taldir frambærilegir á leigumarkaði. Þetta fólk er öllum gleymt en býr við að vera nánast allir bjargir bannaðar í fjárhagslegu tilliti. Enn þann dag í dag hefur þetta fólk ekki bitið úr nálinni með stefnu norrænu velferðarstjórnarinnar og á kröfu á að hlutur þess verði réttur.

Engar varnir hafa verið reistar í þágu heimilanna. Að tilstuðlan Hagsmunasamtaka heimilanna hefi ég lagt fram lyklafrumvarp til varnar heimilum. Því er ætlað að verja fjölskyldur fyrir því að vera krafðar um greiðslur af hálfu fjármálastofnana eftir að hafa misst heimili sín.

Á liðnu þingi stóð ég fyrir sérstakri umræðu um verðtrygginguna. Við upphaf þings í haust lagði ég fram frumvarp sem felur í sér umfangsmiklar og víðtækar breytingar á verðtryggingu lána í fjórum þáttum. Fyrst að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni. Í öðru lagi að taka út áhrif óbeinna skatta svo þær hækkanir leiði ekki til hækkunar húsnæðislána og þyngri greiðslubyrði. Í þriðja lagi er eitraði kokkteillinn svonefndi tekinn út, það er að verðtryggð jafngreiðslulán megi ekki vera til lengri tíma en 25 ára. Í fjórða lagi að vextir á verðtryggðum lánum fari ekki upp fyrir 2% og styðst sú tala við viðurkennd viðmið um aukningu á framleiðni og hagvöxt til langs tíma. Hér hef ég rakið markvissar tillögur um varnir fyrir heimilin.

Þjóðin eldist hratt og þarf raunhæf úrræði til að mæta vaxandi þörf fyrir hjúkrunarrými. Frumvarpi mínu um breytingar á lögum um málefni aldraðra er ætlað að tryggja að fé Framkvæmdasjóðs aldraðra sé varið til byggingar fyrir aldraða og til að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og endurbætur á því húsnæði. Verði frumvarpið að lögum myndi fé sjóðsins á hverju ári til að byggja heimili fyrir aldraða aukast um 67% frá því sem nú er eða úr um 1,4 milljörðum kr. í um 2,3 milljarða kr. Þetta jafngildir árlega um 30 hjúkrunarrýmum.

Ég vil, herra forseti, vekja sérstaka athygli á þingmálum háttvirts þingmanns Karls Gauta Hjaltasonar. Af nógu er að taka en nægir að nefna fyrirspurnir hans um sölu á upprunaábyrgðum raforku en stefnumótun í þeim málaflokki hefur afgerandi þýðingu og gæti skipt máli fyrir þróun raforkuverðs hér á landi. Þá má nefna fyrirspurn hans um viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi sem hafa haft mikil áhrif í mörgum byggðarlögum úti á landi sem undirstrikar nauðsyn þess að við endurskoðum stefnu okkar í þeim efnum með reglulegu millibili til að tryggja íslenska hagsmuni. Þá vil ég geta sérstakrar umræðu sem hann stóð fyrir um málefni unga karlkynsins, drengja og pilta sem finna til óyndis í skólakerfinu og grípa til örþrifaráða alltof margir sem ungir menn. Þessi mál verðskulda ítarlega umræðu og aðgerðir af hálfu stjórnvalda.

Herra forseti, við óháðir þingmenn utan flokka munum veita ríkisstjórninni aðhald sem fyrr en styðja hana til góðra verka. Við munum standa vörð um fullveldi þjóðarinnar yfir auðlindum sínum og við munum standa vörð um lífsrétt ófæddra barna með áherslu á félagsleg úrræði fyrir mæður í vanda. Fyrirhuguðu fé í þjóðarsjóð ber að verja til uppbyggingar innviða.

Framundan bíða á Alþingi mörg úrlausnarefni í þágu þeirra sem hafa orðið útundan í okkar þjóðfélagi. Við munum ekki láta okkar eftir liggja í þeirri baráttu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“