Þeir Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, sem reknir voru úr Flokki fólksins vegna Klaustursmálsins, eru nú utan þingflokka. Báðir mótmæltu þeir í dag, að hafa ekki fengið úthlutað ræðutíma, en þingið hófst nýju í dag eftir jólafrí. Allir forystumenn þingflokka fá úthlutað ræðutíma til að taka þátt í almennum stjórnmálaumræðum, en svo var ekki hjá Karli og Ólafi, nema í andsvörum. Kjarninn greinir frá.
Í ræðum sínum um fundarstjórn forseta, nefndi Karl Gauti að þetta væri „óboðlegt“ og að hann og Ólafur hefðu nefnt við Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis, í byrjun desember, að þeir ætluðu sér báðir að starfa utan flokka og óskuðu eftir að tillit væri tekið til þess og samstarfs þeirra.
Ólafur sagði að vinnubrögð forseta vektu furðu, þau hefðu valdið honum vonbrigðum, þar sem hann hefði staðið í þeirri trú að hann yrði meðal ræðumanna:
„Af hálfu skrifstofu Alþingis var okkur boðið að halda fimm mínútna ræðu en svo bregður við skömmu áður en umræður hefjast og að fulltrúi okkar yrði ekki á mælendaskrá.“
Steingrímur svaraði því til að engar óskir um þátttöku frá þeim kumpánum hefðu borist inn á sitt borð fyrir umræður dagsins og ekki hefði því verið hægt að hverfa frá samkomulagi sem fyrir lægi um fundinn, en tók fram að réttur þeirra sem utanflokksþingmenn, yrði virtur, líkt og kæmi fram í þingsköpum.