fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Ólafur varð fyrir árás lesenda vegna gleraugna – Nú svarar hann fyrir sig

Auður Ösp
Sunnudaginn 16. desember 2018 17:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er gleraugnaglámur, er að vísu margt annað en þetta var ég oft kallaður í grunnskóla og þótti mér það ekkert sérstaklega gaman þá. Ég tók það oft inn á mig en svo þroskast maður og ég finn ekkert fyrir svona í dag, hvort sem einhver setur út á gleraugun eða annað í mínu fari. Fólk má hafa sína skoðun án þess að það trufli mig eitthvað. Ég er ekki allra, það eru ekki allir fyrir mig og það er í fínu lagi.“

Þannig hefst pistill eftir Ólaf Hannesson sem birtur er á Eyjunni í dag. Pistilinn skrifar Ólafur vegna viðbragða sem hann fékk í kommentakerfinu á DV eftir að DV birti frétt um Ólaf og skoðun hans á Klaustursmálinu. Ólafur hefur mátt glíma við ýmsar útgáfur af stríðni frá því að hann var krakki.

Ólafur er fyrrverandi varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi. Hann skrifaði grein í Morgunblaðið sem DV gerði sér mat úr. Þar gagnrýndi hann Báru Halldórsdóttur fyrir að sitja í nokkra tíma og taka upp þegar sex þingmenn sátu þar á sumbli og töluðu illa um mann og annan. Hélt Ólafur fram að um lögbrot væri að ræða sem þyrfti að bregðast við. Þá hefðu fjölmiðlar brugðist hlutverki sínu og þetta væri ekki fréttir sem ættu erindi til almennings. DV fékk upptökurnar í hendur líkt og Stundin og Kvennablaðið og birti fyrstu frétt um málið. Sú frétt sneri að því að greina frá því að Gunnar Bragi Sveinsson fyrrverandi utanríkisráðherra hefði sett af stað fléttu þegar hann skipaði Geir H. Haarde og Árni Þór Sigurðsson sem sendiherra og hans biði í staðinn síðar svipuð staða. Frétt sem DV telur að hafi átt fullt erindi til almennings sem og fleiri fréttir sem birtar voru upp úr upptökunum. Þá sagði Ólafur eftir að hafa gagnrýnt Báru og fjölmiðla að giðrof, ekki siðrof, hefði átt sér stað:

„Það sem fólk gleym­ir í þessu sam­hengi er að þegar búið er að rjúfa þessi vé þá er eng­inn óhult­ur. Það má alltaf rétt­læta upp­tök­ur og birt­ing­ar með ein­hverj­um hætti ef vilji er til. Það er nauðsyn­legt að þessi þróun sé stöðvuð.“

Mikill hiti skapaðist í kommentakerfi DV og fékk Ólafur fyrir ferðina þar. DV birti mynd sem ku vera 10 ára gömul. Þótti lesendum gleraugun sérstök og var gert grín af þeim í kommentakerfinu og á Twitter. Þá voru ýmis ljót orð látin falla. Ólafur sendi því DV grein sem birt var eins og áður segir á vef DV í dag.

Eftir að hafa reifað grein sína snýr hann sér að virkum í athugasemdum en greinina kveðst Ólafur hafa skrifað til að fjalla um hræsnina í þeim sem gagnrýna þingmennina með sambærilegu orðfæri og það „bölsótast yfir í samtali sexmenningana.“ Ólafur segir:

„Það er full ástæða til að þakka DV fyrir umrædda birtingu, viðbrögð margra lesenda við henni varpa skæru ljósi á efni greinarinnar. Í athugasemdum sem birtust undir „fréttinni“ kennir ýmissa grasa og athygli vekur hve margar neikvæðar athugasemdir fjalla um myndina af höfundi greinarinnar. Myndin sem ritstjórnin gróf upp er um tíu ára gömul, en það sem fór fyrir brjóstið á háttvirtum réttlætisriddurum athugasemdakerfisins var hversu ljót gleraugun mín voru á þeim tíma – ég vona bara að núverandi gleraugu mín nái að þræða hið þrönga nálarauga þessara augljóslega smekkvísu aðila.“

Hin umdeilda mynd sem DV birti með frétt sinni

Ólafur heldur áfram: „Nú er það svo að ég er verulega nærsýnn, er með um mínus 24 á báðum augum. Af þessu leiðir að gleraugun mín verða verulega þykk fyrir vikið. Það þýðir að ég bý við takmarkað úrval af umgjörðum sem ráða við slíka þykkt. Raunar er nærsýni mín slík að um fötlun er að ræða, án gleraugna sé ég ekkert, þau eru mér nauðsynlegt hjálpartæki í lífinu,“ segir Ólafur.

„Í raun var það kostuleg lesning að fara í gegnum þessar athugasemdir, þar sem fólk fór háðuglegum og stundum meinfýsnum orðum um útlit og bakgrunn höfundar án þess að fjalla um málefnið og rökin sem færð voru fyrir þeim – nokkuð sem að klaustursþingmennirnir hafa einmitt verið gagnrýndir fyrir. En verði þeim að góðu, það er mér að meinlausu að gert sé grín af hjálpartækjum mínum. Ég get einnig upplýst þá um að ég þarf að notast við heyrnartæki í daglegu lífi, séu þeir að leita að frekari skotfærum í frethólka sína. Hegðun þeirra og orð fella einungis dóma um hvernig mann þau sjálf hafa að geyma en ekki þá sem verða fyrir aðkasti þeirra,“ segir Ólafur og heldur áfram:

„Ég hef fullan skilning á því hvernig þetta fólk talar í athugasemdakerfunum, það er á engan hátt réttlætanlegt en ég skil það hvernig þau gleyma sér rétt eins og klaustursþingmennirnir gerðu, liðið í athugasemdunum kaus meira að segja að gera þetta í opinberri umræðu. Það er að minnsta kosti ljóst að ekki lásu þau greinina sem ég skrifaði, þau hafa lesið fyrirsögn DV og þar með var dómurinn kominn. En það veitir mér né öðrum ekki rétt á því að níða þau sérstaklega sem einstaklinga. Ég vorkenni þeim frekar og vona að þau læri með tíð og tíma að sjá heildarmyndin. Ég er kannski nærsýnn en þau virðast vera blind á eigin hræsni.“

Ólafur segir að í sjálfu sér sé ekki ástæða til að svara hinum dónalegu sérstaklega en umhugsunarvert sé að verða vitni að því að sjá fólk taka aðra fyrir án þess að kynna sér rök þeirra. Þetta sé löstur í íslenskri umræðuhefð.

„Skoðanakúgunin sem birtist í athugasemdakerfunum er rosaleg og smánunin sem þar er reynt að viðhafa gagnvart þeim sem hafa ekki skoðanir sem þóknast þeim sem fara með „sannleikann“ í umræðunni er hættuleg. Að höggva sífellt í manninn án stað þess að skoða hvaða rök hann ber á borð er merki um þjóðmálaumræðu sem leiðir í öngstræti. Það táknar yfirleitt að fólk sé rökþrota og það dæmir sig sjálft með atganginum. Þar breytir engu hvort að fólk réttlæti ósómann með því að rætt sé um klaustursþingmenn eða aðra þá sem þeir telja að sýna beri vandlætingu.“

Þá óskar Ólafur lesendum gleðilegra jóla og kveðst vonast eftir málefnalegri umræðu á næsta ári.

„Loks vil ég geta þess að ég tek þessum athugasemdum um gleraugun mín ekki sem árás eða grín á kostnað þess fjölda samborgara mína sem þurfa að nota gleraugu eða öðrum þeim sem glíma við fötlun. Ég hef ekki, frekar en aðrir, rétt til að móðgast fyrir hönd heilla þjóðfélagshópa!“

Hér má lesa pistilinn í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki