Orðið á götunni er að ný lögmannsstofa líti senn dagsins ljós í Síðumúlanum sem muni bera nafnið JSG lögmenn. Mun hún samanstanda af þremur lögmönnum og einum lögfræðingi, nánar tiltekið þremur systkinum og föður þeirra, Jóni Steinari Gunnlaugssyni, hrl.
Jón Steinar og synir hans, Hlynur og Konráð, voru áður hjá lögmannsstofunni Veritas og munu þeir njóta liðsinnis Huldu Bjargar systur þeirra á nýju stofunni.
Jón Steinar var Hæstaréttardómari frá 2004 – 2012 og hefur mikið látið að sér kveða á opinberum vettvangi. Hann var nýlega sýknaður í meiðyrðamáli sem Benedikt Bogason hæstaréttardómari, höfðaði á hendur honum, fyrir að kalla dóm Hæstaréttar gegn Baldri Gunnlaugssyni, fyrrum ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, „dómsmorð“ í bók sinni, en Baldur var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik árið 2011.