Líkt og sagði í frétt DV í seinustu viku þá skrifaði Jón Gnarr pistil um viðhorf Íslendinga til flóttamanna og áfengisneyslu.
Það sem vakti hvað mesta athygli í pistli Jóns var að hann sagðist hafa hitt ofurölvaðan ráðherra í mjög slæmu ástandi.
Þessi fullyrðing skapaði mikið umtal. Margir veltu fyrir sér hver þessi ónafngreindi ráðherra væri. Á meðal þeirra sem veltu því fyrir sér voru meðlimir Facebook-hópsins Pírataspjallið, sem er einn helsti umræðuvettvangur stjórnmálaflokksins Pírata.
Könnun var gerð innan grúbbunar, þar sem meðlimir voru spurðir „Hvaða ráðherra myndu þið giska á að það hafi verið?“
Niðurstöðurnar verða að teljast heldur afgerandi. Þegar þessi grein er skrifuð hafa um það bil hundrað manns svarað spurningunni og sjötíu þeirra telja að Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra hafi verið sá ofurölvaði.
Á eftir Ásmundi í röðinni koma Guðlaugur Þór með þrettán atkvæði, Bjarni Benidiktsson með níu atkvæði, Sigurður Ingi með fimm atkvæði, Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir, báðar með tvö atkvæði og síðan Þórdís kolbrún með eitt atkvæði. Aðrir ráðherrar hafa ekki fengið nein atkvæði þegar hingað kemur við sögu.