fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Ritstjóri Fréttablaðsins hjólar í Pírata – „Stjórnmálamenn verða að sæta ábyrgð, en ekki benda í sífellu á fyrirrennara sína“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 22. ágúst 2019 13:20

Ólöf Skaftadóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Það voru vonbrigði að heyra borgarfulltrúa Pírata bera því við að meirihlutinn hefði tiltölulega nýverið tekið við störfum. Það er einfaldlega ódýr fyrirsláttur. Hennar flokkur hefur verið við völd síðasta hálfa áratug, og borgarstjóri með hléum nánast frá aldamótum,” skrifar Ólöf Skaftadóttir, ritstjóri Fréttablaðsins í leiðara blaðsins í dag.

Skrifin eru innlegg í umræðu um rekstrarskilyrði fyrirtækja í Reykjavík og gagnrýni á yfirvöld í borginni og borgarstjórnarmeirihlutann í tengslum við það. Ólöf skrifar:

„Sláandi munur er á að hefja rekstur í Reykjavík og borgum á Norðurlöndum að sögn framkvæmdastjóra Joe & the Juice á Íslandi. Í Reykjavík telur hann ferlið „úrelt, ógagnsætt, óþarflega umfangsmikið og tímafrekt.

Umkvartanir framkvæmdastjórans ríma við reynslu annarra fyrirtækja í borginni, sem lýstu slæmri reynslu sinni af rekstri í Reykjavík í samtali við Markað gærdagsins. Öllu ferlinu virðist ábótavant, nánast hvar sem drepið er niður fæti. Umsóknir taka langan tíma og jafnvel týnast í regluverksfrumskógi. Einföldustu hlutir virðast vefjast fyrir borgaryfirvöldum eins og undirritun leyfa og pappíra. Traustið í garð einkaframtaksins er í skötulíki.

Viðmótið sem fyrirtæki mæta hjá borginni virðist stundum vera að sjálfsagðir hlutir séu bannaðir þangað til þeir eru sérstaklega leyfðir. Auðvitað er það öfugsnúið.“

Ólöf minnist á áhrif framkvæmda í miðborginni á rekstur fyrirtækja þar:

„Framkvæmdirnar miðsvæðis þekkja allir. Vitaskuld er nauðsynlegt að endurnýja stræti. Uppbygging miðborgarinnar er af hinu góða. En hún verður að eiga sér stað skipulega og með eðlilegu samráði við íbúa og atvinnulíf. Ekki er boðlegt að senda bréf á föstudegi og hefja framkvæmdir á mánudegi.“

Ólöf segir að slæmt rekstrarumhverfi fyrirtækja í borginni sé ekki bara borgaryfirvöldum að kenna heldur ríkinu líka:

„Bágborið rekstrarumhverfi í Reykjavík er ekki borgaryfirvöldum einum að kenna. Ríkið lætur ekki sitt eftir liggja. Dýrt er að stofna einkahlutafélög og skattaumhverfi að mörgu leyti óhagstætt. Launaumslag starfsmannsins gefur ekki fulla mynd af kostnaðinum sem honum fylgir. Þar vantar ofan á launatengdu gjöldin, eins og hið séríslenska tryggingagjald.“

Ólöf segir hins vegar að ábyrgð borgarmeirihlutans sé mikil og átelur hún Pírata sérstaklega fyrir að víkja sér undan ábyrgð á stöðunni:

„En meirihlutinn í borginni, með borgarstjóra í broddi fylkingar, þarf að sæta ábyrgð hvað rekstrar­umhverfið í borginni varðar. Hann þarf að átta sig á því að borgin á að létta undir með atvinnulífinu eins og kostur er, en ekki öfugt. Farsæll rekstur er forsenda blómlegs mannlífs.

Það voru vonbrigði að heyra borgarfulltrúa Pírata bera því við að meirihlutinn hefði tiltölulega nýverið tekið við störfum. Það er einfaldlega ódýr fyrirsláttur. Hennar flokkur hefur verið við völd síðasta hálfa áratug, og borgarstjóri með hléum nánast frá aldamótum.

Stjórnmálamenn verða að sæta ábyrgð, en ekki benda í sífellu á fyrirrennara sína. Fyrrverandi pólitíkusar gegna ekki embættum og sæta ekki ábyrgð. Það gera hins vegar þeir sem hverju sinni eru kjörnir fulltrúar. Ábyrgðin er þeirra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus