fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Klaustursmenn hættir að iðrast

Egill Helgason
Föstudaginn 2. ágúst 2019 02:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er athyglisvert að sjá að nú þegar hefur verið felldur úrskurður forsætisnefndar Alþingis í Klaustursmálinu eru Miðflokksmenn hættir að sýna nokkra iðrun.

Þvert á móti láta þeir eins og þeir hafi verið miklum órétti beittir, að þarna hafi verið í gangi aðför að þeim.

Það er raunar erfitt að kenna öðrum um þegar maður situr fullur á bar, delerandi, og eys óhróðri yfir mann og annan. Ríkisstjóri Puerto Rico sagði nýskeð af sér vegna svipaðs máls.

En það má samt reyna. Og gefst stundum býsna vel í stjórnmálum nútímans þar sem hefur algjörlega verið snúið á haus hvað er satt og hvað er logið. Minnir oft mest á hina rugluðu lógík í Lísu í Undralandi.

Reyndar hef ég verið að gæla við þá kenningu að Miðflokksmenn hafi gert mistök dagana eftir Klausturuppákomuna. Þeir sýndu iðrun, virtust sumir alveg bugaðir, létu sig hverfa.

Fylgið minnkaði vissulega, en spurningin er – minnkaði það vegna Klaustursummælanna eða vegna viðbragða Miðflokksmanna sem voru eins og út úr karakter, bljúgir og auðmjúkir.

En ef þeir hefðu látið þetta eins og vind um eyru þjóta – verið uppástöndugir og kokhraustir. Tekið trumpinn á þetta? Fylgi Trumps minnkar ekki þótt hann gangi fram af sumum kjósendum.

Fylgið var altént ekki lengi að aukast aftur eftir Klausturmálið. Nú er það meira en nokkru sinni fyrr og gæti jafnvel aukist enn á næstunni. Klaustursmálið hefur líka haft þau áhrif að Miðflokkurinn er orðinn miklu eindregnari í sinni lýðhyggju en áður – það er varla nein tilviljun.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins