fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Formaður Samtakana ’78 vill ekki fá varaforseta Bandaríkjana til landsins – „Hrein og klár vanvirðing“

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 11. ágúst 2019 16:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifaði skoðanapistil á Vísi vegna fyrirhugaðrar en óstaðfestrar komu varaforseta Bandaríkjanna, Mike Pence, til Íslands. Þorbjörg er formaður Samtakanna ‘78 sem eru Hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi. 

„Í fréttum undanfarið hefur farið töluvert fyrir fyrirhugaðri en þó óstaðfestri komu varaforseta Bandaríkjanna, Mike Pence, til Íslands. Lítið hefur þó verið fjallað um þá staðreynd að hann er mótfallinn sjálfsögðum mannréttindum hluta íslensku þjóðarinnar. Hinsegin fólk á Íslandi þarf að sitja undir því að íslensk stjórnvöld vinni nú hörðum höndum að komu manns sem hefur allan sinn feril – í stjórnmálum og utan þeirra – barist af fullum krafti gegn hinsegin réttindum. Við skulum tæpa á nokkrum atriðum. 

Þorbjörg minnir á það að Mike Pence er á móti hjónaböndum samkynhneigðra auk þess sem hann er fylgjandi því að hinsegin fólki sé mismunað.

„Hann er svo eindregið á móti þeim að árið 2013 skrifaði hann sem ríkisstjóri undir lög í Indiana sem gerðu það refsivert fyrir samkynja pör að reyna að sækja um hjónavígsluvottorð. Mike Pence er fylgjandi því að okkur sé mismunað. Hann telur það eðlilegt að fólk megi neita okkur um þjónustu fyrir það hver við erum. Sem ríkisstjóri skrifaði hann undir lög árið 2015 sem veittu heimild til mismununar á hinsegin fólki á grundvelli trúarskoðana.“

Þorbjörg talar um gagnrýni Pence á löggjöf sem á að vernda hinsegin fólk gegn hatursglæpum. Hún talar einnig um ritstjórastörf Pence hjá Indiana Policy Review en þá birti hann greinar um að ekki ætti að ráða homma og lesbíur til vinnu. 

„Það tók hann og hans nánasta samstarfsmann enda ekki langan tíma að fá þúsundir trans fólks reknar úr gervöllum Bandaríkjaher, en bann við trans fólki í hernum tók gildi 12. apríl síðastliðinn.“

Hún segir að Mike Pence njóti ráðgjafar og stuðnings haturssamtaka sem berjast gegn réttindum hinsegin fólks með kjafti og klóm.

„Raunar sat hann sjálfur eitt sinn í stjórn slíkra samtaka, Indiana Family Institute, sem mæla t.d. með afhommunarmeðferðum og eru alfarið á móti því að samkynja pör ættleiði börn. Afhommunarmeðferðir eru pyntingar og til slíkra meðferða vildi Mike Pence færa ríkisfjármuni árið 2000 – úr sjóðum samtaka sem veita aðstoð vegna HIV og alnæmis.“

Þorbjörg segir þessa upptalningu því miður ekki vera tæmandi en engu að síður gefi hún til kynna að það eru engar nýjar fréttir að Mike Pence sé andstæðingur og illgjörðarmaður hinsegin fólks.

„Eða eins og Bandaríkjaforseti grínaðist með samkvæmt heimildarmönnum the New Yorker þegar réttindi hinsegin fólks bar á góma innan veggja Hvíta hússins: “Ekki spurja þennan gaur – hann vill hengja þau öll!” Hvort í þessum ummælum leynist sannleikur er ógjörningur að segja, en ljóst er að Mike Pence hefur valdið hinsegin fólki þjáningum svo áratugum skiptir og er hvergi nærri hættur.“

Þorbjörg botnar pistilinn með því að segja allar áætlanir um komu Mike Pence til landsins vanvirði samfélag hinsegin fólks á Íslandi.

„Nú ætlar ríkisstjórn Íslands að taka á móti Mike Pence, ræða kurteisislega við hann um viðskiptasamráð og efla með því tengslin við Bandaríkin. Allar slíkar áætlanir eru hrein og klár vanvirðing við samfélag hinsegin fólks á Íslandi. Við munum ekki sitja undir því þegjandi að hann sé boðinn velkominn hingað til lands. Ekki séns.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins