fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Segir umhverfisráðherra ekki til stórræðanna þegar kemur að verndun náttúrunnar gegn virkjanasóðum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 18. júlí 2019 07:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Skýrsla frá Landsneti rataði í fréttir á dögunum en þar er varað við raforkuskorti hér á landi innan þriggja ára. Þetta er vitanlega allnokkur frétt sem vekur um leið margar spurningar. Ein er sú af hverju ekki hefur verið varað alvarlega við þessum skorti fyrr. Vitanlega er ekki hægt að ætlast til að Landsnetsmenn og aðrir í orkugeiranum búi yfir skyggnigáfu en ef svo mikil hætta er á orkuskorti hefði ekki mátt sjá hann fyrir svo miklu fyrr? Varla vöknuðu menn upp einn daginn og fengu vitrun frá æðri máttarvöldum um orkuskort á Íslandi innan örfárra ára og flýttu sér að koma þeim mikilvægu upplýsingum í skýrslu.“

Svona hefst pistill Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu í dag þar sem hún fjallar um fréttir um yfirvofandi raforkuskort hér á landi. Hún virðist efast um sannleiksgildi þeirra frétta og spyr af hverju hafi ekki verið varað við þessu fyrr ef þetta er rétt.

„Nú má reyndar vel vera að einhverjir í orkugeiranum þykist lengi hafa séð þessa þróun fyrir en þá má spyrja hvort þeir hinir sömu hafi upplýst stjórnvöld um þessa vitneskju sína á þeim tíma sem þeir áttuðu sig á ástandinu. Og ef þeir gerðu það, af hverju upplýstu stjórnvöld, fulltrúar almennings, ekki þjóð sína um yfirvofandi orkuskort? Af hverju er allt í einu núna farið að ræða um raforkuskort innan skamms tíma og jafnvel rætt fjálglega um skömmtun á rafmagni?“

Segir Kolbrún og bætir við að iðnaðarráðherra hafi látið teyma sig inn í þennan leik og hafi sagt að stjórnvöld taki þessar nýju ábendingar úr orkugeiranum alvarlega. Kolbrún segir að stjórnvöld ættu að taka þessum ábendingum með varúð því hugsanlega sé verið að draga þau inn í áróðursstríð sem sé beint gegn þeim sem vilja stíga varlega til jarðar í virkjunaráforum og vernda náttúruperlur.

„Ýmsir fulltrúar orkugeirans og kónar þeirra sem vara við raforkuskorti kunna greinilega ýmislegt fyrir sér í áróðri. Þannig senda þeir skilaboð til almennings og tónninn er eitthvað á þessa leið: „Eruð þið tilbúin til að fórna hluta af þægilegum lífsstíl ykkar og vera án orku í þó nokkurn tíma vegna þess að til er fólk sem er án jarðsambands og vill ekki sjá virkjanir? Sjáið þið til dæmis lætin út af Hvalárvirkjun sem er mikið framfaramál, en í stað þess að átta sig á því jarmar þetta sama fólk út af einhverjum fossum sem á að þurrka upp í þágu atvinnuuppbyggingar,“

segir Kolbrún og bætir við að auðvitað sjái ekki allir í gegnum þennan áróður og sumir gangi honum jafnvel glaðir á hönd.

„Í þessu máli er því miður ekki hægt að treysta á dómgreind stjórnvalda. Einhver kynni að sjá vonarglætu í þeirri staðreynd að Vinstri græn leiða ríkisstjórn en því miður hefur samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn dregið mjög úr hugsjónakrafti þeirra. Meira að segja umhverfisráðherrann, sem er drengur góður, virðist ekki til stórræðanna þegar kemur að því að vernda náttúruna gegn virkjanasóðunum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn virðast svo ekki hafa vott af áhuga á náttúruvernd og eru einmitt líklegir til að breiða út faðminn og móttaka áróður orkugeirans með gleði í hjarta, um leið og þeir kinka samþykkjandi kolli yfir enn frekari virkjanaáformum þar sem náttúruperlum er fórnað eins og ekkert sé.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn