Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að skiptar skoðanir séu um breytingar á lögum um jarðakaup útlendinga meðal sjálfstæðismanna. Brynjar sagðist í samtali við DV vera opinn fyrir breytingum á lögunum, en takmörk væru fyrir því hversu langt væri hægt að ganga, enda yrðu menn að líta til eignaréttarins. Þegar hann var spurður hvort hann gæti samþykkt skilyrði um að eigendur jarða hérlendis byggju á þeim og hefðu þar lögheimili var svarið: „Nei, það væri aðeins of langt gengið.“
Slíkar hugmyndir komu einmitt fram í tillögum starfshóps sem skilaði tillögum um eignarhald bújarða síðasta haust. Sú vinna verður væntanlega lögð til grundvallar í vinnu að frumvarpi, sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vonast til að lagt verði fram í haust. Haft var eftir Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra fréttum RÚV í gærkvöldi að breiður pólitískur vilji væri til að takmarka jarðakaup auðmanna hér á landi. Það eigi ekki að líta á land sem hverja aðra vöru eða þjónustu.
Þó breið samstaða sé um að herða reglur, þá er ljóst að sjálfstæðismenn munu spyrna við fótum telji þeir of langt gengið. Brynjar segir að málið hafi ekki verið rætt í þingflokknum nýlega. Það hafi hins vegar verið gert á sínum tíma og þá hafi verið deildar meiningar um hversu langt ætti að ganga. Nauðsynlegt sé að hafa reglur og takmarkanir, en menn séu ekki endilega tilbúnir til að ganga mjög langt.