Aukin harka hefur færst í deilurnar í Sjálfstæðisflokknum, sem hverfast ekki síst um Davíð Oddsson ritstjóra Morgunblaðsins og hárbeitt Reykjavíkurbréf hans. Mörgum brá þegar Þorkell Sigurlaugsson, áhrifamaður í viðskiptalífinu til margra ára og virkur í málefnastarfi Sjálfstæðisflokksins, tók upp pennann (eða lyklaborðið) um helgina og skrifaði afar harðorða grein um „höfund Reykjavíkurbréfs“ og dylst engum að skotum er beint að Davíð Oddssyni. Vandræðagangurinn innan flokksins eykst dag frá degi og kvíða margir flokksráðsfundi í lok september, enda deilur ekki gott veganesti inn í haustþing, þar sem orkupakkinn verður í sviðsljósinu, að uppgjör skuli vera framundan. Ljóst er að margir munu fylgjast grannt með skoðanakönnunum næstu mánuðina. Enn er ekki að sjá að fylgisbreytingar séu miklar hjá Sjálfstæðisflokknum, en það gæti breyst fljótt ef sverð verða ekki slíðruð á næstunni.