Sveitarfélögum á Íslandi hafa borist leiðbeiningar frá Örnefnanefnd, Stofnun Árna Magnússonar og Landmælingum Íslands, um hvað hafa þurfi í huga til þess að ný örnefni samræmist markmiðum örnefnalaga um viðhald og varðveislu örnefna og örnefnahefða.
Er lagt til að sveitarfélögin sjálf taki frumkvæði við nafngiftir þegar slík þörf skapist og sporni við því að óviðunandi nöfn skjóti rótum.
Þar á meðal er varað við því að enskar nafngiftir verði algildar hérlendis og mælt með að spornað verði við slíkri þróun. Vísað er til þess að Breiðamerkursandur sé nefndur „Diamond beach“ Google Maps leiðsöguforritinu.
Formaður Örnefnanefndar, Þórunn Sigurðardóttir, segir í Morgunblaðinu í dag að slík þróun skaði íslenska tungu:
„Það sem vakir fyrir okkur er einkum örnefnavernd, að íslensk örnefni glatist ekki. Við hvöttum því menntamálaráðuneytið til þess að hafa samband við Google og hvetja fyrirtækið til að nota örnefnagrunn Landmælinga Íslands, þannig að rétt örnefni séu í Google Maps.“
Bætir Þórunn við að ef fleiri en eitt örnefni séu notuð yfir sama stað, geti það stofnað öryggi fólks í hættu, þurfi það á aðstoð að halda.