Hagstofan áformar að taka flug erlendra flugfélaga, sem fljúga hingað til lands, inn í verðbólgutölur sínar. Hagstofan hefur hingað til litið til farmiðaverðs hjá Icelandair og WOW Air og hefur hlutdeild WOW verið um þriðjungur af vísitölunni. Nú þegar WOW hefur hætt starfsemi þykir rétt að reikna inn í vísitöluna verð farmiða frá öðrum félögum og ríkir nokkur óvissa með hvaða áhrif þetta hefur á hana. Landsbankinn telur að það geti orðið til hækkunar, en það getur snúist við ef draumurinn um fleiri lággjaldaflugfélög hérlendis verður að veruleika.