fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Kolbrún elskar sykrað kók: „Nauðsynlegt þykir að koma vitinu fyrir slíkan einstakling“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 27. júní 2019 09:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sykurskatturinn er mál málanna þessi dægrin og virðist andstaðan við hugmyndina öllu meira áberandi en stuðningurinn. Kolbrún Bergþórsdóttir segir í leiðara Fréttablaðsins að það sé ekki hlutverk stjórnmálamanna að ala upp þegna sína:

„Íslenskir stjórnmálamenn myndu gera þjóðinni mikið gagn ef þeir létu af því að reyna að ala hana upp og leyfa henni að bera ábyrgð á sjálfri sér. Uppeldisstarf fer þeim ekki vel enda byggist það að megninu til á alls kyns þvingunum og höftum sem eru til stöðugra leiðinda,“

segir Kolbrún og bætir við:

„Hugmynd um sykurskatt, sem heilbrigðisráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn, samkvæmt tillögum Landlæknisembættisins, er einmitt af þessum toga. Landlæknir vill vitaskuld hafa landsmenn á heilsufæði allan ársins hring en stjórnmálamenn eiga ekki að kasta sér á svo óraunhæfar hugmyndir.“

Hrópandi mótsögn

Kolbrún nefnir að forvitnilegt verði að fylgjast með þingmönnum þeim sem barist hafa fyrir frelsi á áfengismarkaði, hvernig þeir hyggist snúa sér varðandi sykurskattinn:

„Nú verður afar fróðlegt að fylgjast með því hvort þeir þingmenn sem vilja að þjóðin hafi það sjálfsagða val að geta keypt sér bjór og léttvín í matvöruverslunum muni styðja hugmyndina um sérstakan sykurskatt og lenda um leið í hróplegri mótsögn við sjálfa sig. Slíkt hefur reyndar ekki vafist sérlega mikið fyrir þingmönnum þjóðarinnar því þeir eru þaulvanir að haga seglum eftir vindi. Langlíklegast er að einhverjir þeirra eigi trúnaðarsamtal við sannfæringu sína og fái hana til að beygja sig undir hina þvingandi forsjárhyggju. Heldur aumlegt hlutskipti þeirra þingmanna sem stöðugt eru með orð á vörum um frelsi einstaklingsins til orða og athafna. Stjórnmálamenn mættu muna að stundum gera þeir mest gagn með því að láta þjóð sína í friði.“

Undursamlegur drykkur

Kolbrún nefnir að ekki sé spurt að því hvort fólk vilji láta freistast, heldur sé reynt að hafa vit fyrir fólki:

„Nú þykir brýnt að koma í veg fyrir að almenningur, sem er talinn vera á stöðugum villigötum, láti slatta af sykri inn fyrir sínar varir. Til að gera fólki erfiðara fyrir þykir þjóðráð að leggja skatt á vöruna. Um leið er þeim skilaboðum komið áleiðis til verslunareigenda að best sé að varningurinn sé ekki áberandi í versluninni því það geti leitt almenning í freistni. Ekki þykir við hæfi að spyrja hvort einhverjir vilji láta freistast. Heilagleikinn í málflutningnum leyfir ekki þá hugsun að einstaklingur hafi til dæmis einbeittan vilja til að kaupa sér þann undursamlega drykk sem sykrað kók sannarlega er og þamba það af mikilli ánægju heima hjá sér. Nauðsynlegt þykir að koma vitinu fyrir slíkan einstakling.“

Fátækraskattur

Kolbrún minnist einnig á að skatturinn muni koma verst niður á þeim sem minna hafa milli handanna:

 „Staðreyndin er auðvitað sú að þeir sem hafa mikið milli handanna láta sig engu skipta hvort varan sem þeir vilja hafi hækkað eitthvað, það eru hinir sem lítið eiga sem verða að hugsa sig um tvisvar. Sykurskattinn mætti því vel kalla fátækraskatt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt