fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Seðlabankinn lækkar vexti

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 26. júní 2019 09:19

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,75%, samkvæmt tilkynningu.

Nýjustu upplýsingar um þróun efnahagsmála breyta ekki því mati á efnahagshorfum sem lá fyrir á síðasta fundi peningastefnunefndar. Hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi var í takt við maíspá Seðlabankans og áfram er gert ráð fyrir samdrætti í þjóðarbúskapnum sem mun birtast frekar á komandi mánuðum. Kröftugri einkaneysla á fyrsta fjórðungi og leiðandi vísbendingar gætu þó bent til þess að undirliggjandi þróttur innlendrar eftirspurnar hafi verið meiri en talið var. Á móti eru horfur á að samdráttur í ferðaþjónustu verði meiri.

Verðbólga hefur enn sem komið er verið í samræmi við síðustu spá Seðlabankans en samkvæmt spánni hefur hún náð hámarki og mun hjaðna í átt að markmiði þegar líður á árið. Frekari lækkun gengis krónunnar gæti þó sett strik í þann reikning. Verðbólguvæntingar hafa lækkað frá því sem þær voru í kringum síðasta fund nefndarinnar. Taumhald peningastefnunnar hefur því aukist á ný.

Samdráttur í þjóðarbúskapnum mun reyna á heimili og fyrirtæki en viðnámsþróttur þjóðarbúsins er umtalsvert meiri nú en áður. Svigrúm peningastefnunnar til að mæta efnahagssamdrættinum er einnig töluvert, sérstaklega ef fer sem horfir og verðbólga og verðbólguvæntingar haldast við verðbólgumarkmið. Þá mun boðuð slökun í aðhaldi ríkisfjármála leggjast á sömu sveif.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.

Vextir verða því sem hér segir:
1. Daglán 5,50%
2. Lán gegn veði í verðbréfum 4,50%
3. Innlán bundin í 7 daga 3,75%
4. Viðskiptareikningar 3,50%
5. Bindiskyldar innstæður, meðaltalsuppfyllt 3,50%
6. Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00%

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins