Samkomulag hefur náðst um afgreiðslu mála á Alþingi og eru þinglok því í höfn. Þetta kemur fram í fréttum RÚV. Samið hefur verið um að fresta þriðja orkupakkanum þar til í lok sumars. Gildistöku frumvarps um innflutning á fersku kjötið hefur líka verið frestað.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir of auðvelt að taka þingið í gíslingu, en þingmenn Miðflokksins hafa haldið uppi miklu málþófi á Alþingi undanfarið.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fagnar því að nú gefist ráðrúm til að skoða orkupakkamálin betur.