Framkvæmdir við endurnýjun Hverfisgötu ganga samkvæmt áætlun og í fyrramálið hefst vinna við gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Loka verður gatnamótunum á meðan og beina umferð um hjáleiðir, samkvæmt vef Reykjavíkurborgar.
Gert er ráð fyrir að opna gatnamótin að nýju fyrir bílaumferð í lok ágúst og að framkvæmdum í heild við endurgerð Hverfisgötu milli Ingólfsstrætis og Smiðjustígs verði lokið í september.
Gönguleiðir að verslun og þjónustu eru opnar meðfram framkvæmdasvæðinu. Aðkomu að bílastæðum í Traðarkoti verður haldið opinni eins lengi og mögulegt er.
Framkvæmdir á Hverfisgötu ná frá Smiðjustíg niður fyrir Ingólfsstræti og í lok sumars verður útlit götunnar það sama og á þegar endurgerðum hluta Hverfisgötu. Lagnir veitufyrirtækja verða endurnýjaðar, sem og allt yfirborð götu og gangstétta. Lagnir í Ingólfsstræti milli Hverfisgötu og Laugavegs verða einnig endurnýjaðar. Framkvæmdir hófust 20. maí og hafa verktakar þurft að brjóta sig í gegnum klöpp undir Hverfisgötunni. Nú þegar því er lokið er framkvæmdasvæðið stækkað.