fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Fjármálaráðherra ákveður laun forstöðumanna samkvæmt nýjum reglum

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. júní 2019 18:30

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýjar reglur um almenn starfskjör forstöðumanna og reglur um viðbótarlaun þeirra hafa tekið gildi, samkvæmt frétt á vef stjórnarráðsins.

Unnið er að umfangsmiklum breytingum á starfsumhverfi forstöðumanna, sem miða að því að bæta stjórnendafærni þeirra og gera ríkið að eftirsóknarverðum vinnustað fyrir öfluga stjórnendur. Ný stjórnendastefna verður kynnt á næstunni og um síðustu áramót tók gildi nýtt launafyrirkomulag forstöðumanna. Reglur um almenn starfskjör og reglur um viðbótarlaun eru hluti af innleiðingu á nýja launafyrirkomulaginu. .Reglurnar eru settar í samræmi við 39. gr. a. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Þar er kveðið á um forsendur nýs launakerfis sem byggir á samræmdu matskerfi, grunnmati starfa.

Ráðherra ákveður almenn starfskjör

Í lögunum er kveðið á um að fjármála- og efnahagsráðherra ákveði almenn starfskjör forstöðumanna. Ráðherra ákveður einnig forsendur viðbótarlauna, en hlutaðeigandi ráðherra, eða eftir atvikum stjórn, ákveður greiðslu viðbótarlauna innan ramma hinna almennu forsendna.

Reglur um almenn starfskjör eru ígildi réttinda sem jafnan er samið um í kjarasamningi. Við gerð reglnanna var horft til þess að almenn starfskjör forstöðumanna væru í samræmi við réttindi félagsmanna Bandalags háskólamanna (BHM) sem starfa hjá ríkinu. Í reglunum er mælt fyrir um réttindi í veikindum og framlag í fjölskyldu- og styrktarsjóð, orlof, endurmenntun og fleira.

Í nýjum reglum um greiðslu viðbótarlauna ákveður fjármála- og efnahagsráðherra forsendur viðbótarlauna en viðkomandi ráðuneyti ákveður hvort og hvenær greiða á viðbótarlaun í samræmi við þær. Heimild til greiðslu viðbótarlauna er bundin við sérstakt álag, t.d. vegna óvæntra eða ófyrirséðra ytri atvika, eða verkefna sem eru verulega umfram reglubundnar starfsskyldur og rúmast ekki innan venjubundinnar starfsemi stofnunar. Fjárhæð viðbótarlauna skal rúmast innan fjárveitingar viðkomandi stofnunar og byggja á málefnalegum sjónarmiðum og vera í takt við tilefni og í samræmi við aðstæður. Fjármála- og efnahagsráðherra tekur árlega saman lista yfir viðbótarlaun og birtir opinberlega. Það verður gert í fyrsta sinn á næsta ári.

Ítarlegri upplýsingar um nýtt launakerfi forstöðumanna er á stjornarradid.is/stjornendur

Reglur um starfskjör forstöðumanna 

Reglur um greiðslu viðbótarlauna forstöðumanna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega