fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

MMR: VG og Framsókn tapa fylgi – Píratar og Samfylking bæta við sig

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 14. júní 2019 14:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,1% og jókst lítillega frá síðustu mælingu (21.5%) MMR frá því í seinni hluta maí. Fylgi bæði Pírata og Samfylkingar mældist 14,4% en Samfylkingin bætti við sig tæpum tveimur prósentustigum milli mælinga. Þá féll fylgi Vinstri grænna um tæp þrjú prósentustig milli mælinga og mældist 11,3%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 40,2% samanborið við 45,5% undir lok maímánaðar.

 

Fylgi Pírata mældist nú 14,4% og mældist 14,0% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,4% og mældist 12,5% í síðustu könnun
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,3% og mældist 14,1% í síðustu könnun..
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,6% og mældist 10,8% í síðustu könnnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,5% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 7,7% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,4% og mældist 3,4% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,2% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,3% samanlagt.

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 988 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 7. til 14. júní 2019

 

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,5%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“