fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Íslendingar verða mest varir við samkeppnisvandamál í farþegaþjónustu

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 13. júní 2019 14:10

Mynd af vef Reykjavíkurborgar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagana 30. apríl til 3. maí 2019 framkvæmdi MMR könnun, að beiðni Samkeppniseftirlitsins, um viðhorf almennings til samkeppnisstefnu stjórnvalda og samkeppni í tilteknum atvinnugeirum. Könnunin er sambærileg könnun sem framkvæmdastjórn ESB lét framkvæma í öllum aðildarríkjum sínum. Gefur hún því færi á samanburði við viðhorf almennings í aðildarríkjum ESB. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að íslenskir neytendur séu mjög meðvitaðir um mikilvægi virkrar samkeppni og samkeppniseftirlits, samkvæmt tilkynningu.

Meginniðurstöður könnunarinnar eru eftirfarandi:

  • 97% svarenda telja virka samkeppni hafa jákvæð áhrif á sig sem neytendur. Þetta er hærra hlutfall en í nokkru ESB-landanna og afgerandi hærra en að meðaltali í ESB ríkjunum, en þar svöruðu 83% því til að virk samkeppni hefði jákvæð áhrif á sig sem neytendur.
  • Íslendingar verða mest varir við samkeppnisvandamál í farþegaþjónustu (42%), fjármálaþjónustu (33%) og á matvörumarkaði (24%). Í könnun ESB nefna hins vegar flestir síma- og netþjónustu (27%), orkumarkað og lyfjamarkað.
  • Um 8 af hverjum 10 hafa heyrt um ákvörðun sem tekin hefur verið af samkeppnisyfirvöldum og nær allir nefna Samkeppniseftirlitið í því samhengi. Í könnun ESB höfðu 5 af hverjum 10 heyrt um ákvörðun samkeppnisyfirvalda.

Könnuninni svaraði 941 einstaklingur og voru niðurstöðurnar vigtaðar með tilliti til aldurs, kyns, búsetu og menntunar. Í könnuninni var spurt um viðhorf almennings til eftirfarandi þátta:

  • Áhrifa samkeppni á neytendur og efnahagslífið.
  • Persónulegrar reynslu af vandamálum vegna skorts á samkeppni, flokkað eftir geirum og birtingarmynd vandamálanna. Nánar  tiltekið var spurt um samkeppni í síma- og internetþjónustu, farþegaþjónustu, dagvörusölu, fjármálaþjónustu, lyfjamarkaði og orkumarkaði.
  • Þekkingar á samkeppnismálum (s.s. samráði eða samrunum fyrirtækja) og hvar hennar var aflað.
  • Þekkingar á ákvörðunum sem teknar eru í tengslum við vandamál tengd samkeppni og hvaða yfirvöld taka þær.
  • Hvert almenningur leiti ef hann verður áskynja um samkeppnisvandamál.

Nánari upplýsingar um könnunina og samanburð við sambærilega könnun sem framkvæmdastjórn ESB framkvæmdi í janúar sl. má finna í riti Samkeppniseftirlitsins nr. 1/2019, Viðhorf almennings til samkeppnismála.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt