fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Isavia ræður nýjan forstjóra

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 13. júní 2019 19:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Isavia hefur ráðið Sveinbjörn Indriðason í starf forstjóra Isavia og tekur hann strax við starfinu, sem hann hefur gegnt undanfarna mánuði ásamt Elínu Árnadóttur aðstoðarforstjóra.

 „Sveinbjörn hefur á síðustu mánuðum sýnt mikla leiðtogahæfileika sem starfandi forstjóri Isavia. Hann hefur mikla reynslu og þekkingu á fyrirtækinu – og hefur um leið slegið nýjan tón. Það eru fjölmargar áskoranir framundan og mikilvægt að stýrt sé af festu og ábyrgð. Við treystum Sveinbirni afar vel til þeirra verka. Um leið viljum við þakka þeim fjölmörgu hæfu umsækjendum sem sóttu um starfið og þann áhuga sem þeir sýndu,“  segir Orri Hauksson, stjórnarformaður Isavia.

 „Ég þakka það traust sem mér er sýnt með ráðningunni,“ segir Sveinbjörn. „Starfið er mjög spennandi og framundan margvísleg verkefni. Hjá Isavia starfar margt hæfileikaríkt og gott starfsfólk sem ég hlakka til að vinna með áfram. Isavia er mikilvægt fyrirtæki fyrir íslenskt samfélag og brýnt að reksturinn sé stöðugur til framtíðar.“

 Umsækjendur um starf forstjóra Isavia voru 26. Ráðningarstofan Intellecta var fengin til að annast ráðningarferlið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki