fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Íbúðir seljast í auknum mæli undir ásettu verði á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 12. júní 2019 08:54

Mynd af vef Reykjavíkurborgar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 84% allra íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í apríl voru undir ásettu verði en um 10% seldust á hærra verði en á þær var sett. Þetta er nokkur breyting frá því sem var fyrir ári síðan þegar annars vegar 69% seldust undir ásettu verði og hins vegar 17% seldust á yfirverði, samkvæmt tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Minni íbúðir eru líklegri til þess að seljast yfir ásettu verði

Áfram virðist mikil eftirspurn eftir minni íbúðum. Það sem af er ári hafa 24% viðskipta með eins eða tveggja herbergja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu verið yfir ásettu verði, samanborið við aðeins 7% viðskipta með íbúðir sem eru fimm herbergja eða stærri. Þess má geta að minni íbúðir hafa ríflega tvöfaldast í verði á undanförnum áratug á meðan verð stærri eigna hefur hækkað um rúm 70%.

Íbúðamarkaður á Vestfjörðum tekur við sér

Húsnæðismarkaðurinn á Vestfjörðum er nokkuð frábrugðinn því sem þekkist annars staðar á landinu. Meðalaldur íbúða þar er hærri auk þess sem hlutfall einbýlishúsa er hátt. Viðskipti með íbúðir á svæðinu hafa tekið vel við sér að undanförnu eftir að hafa verið í dálítilli lægð og var árleg velta fasteigna hærri þar en á sambærilegum svæðum. Talsverð hækkun hefur einnig orðið á söluverði eigna á Vestfjörðum.

88% leigjenda telja að þeir verði áfram á leigumarkaði

Samkvæmt nýrri könnun Íbúðalánasjóðs og rannsóknafyrirtækisins Zenter telja 88% leigjenda líklegt að þeir verði áfram á leigumarkaði eftir hálft ár en aðeins um 9% telja að þeir verði komnir af leigumarkaði. 16% þeirra sem búa enn í foreldrahúsum telja líklegt að þeir færi sig yfir á leigumarkað á næstu 6 mánuðum en í hópi húsnæðiseigenda er hlutfallið einungis 2%.

Óverðtryggðir vextir hafa almennt lækkað

Frá því að Seðlabanki Íslands tilkynnti vaxtalækkun um 0,5 prósentustig í lok síðasta mánaðar hafa flestir þeir sem bjóða upp á óverðtryggð fasteignalán lækkað vaxtakjör sín, allt frá 0,15 til 0,7 prósentustigum. Dæmi voru um að lækkanirnar hafi verið komnar fram einni til tveimur vikum fyrir tilkynningu Seðlabankans um vaxtalækkun en margir markaðsaðilar höfðu spáð fyrir um lækkun.

Sótt um stofnframlög vegna 915 íbúða fyrir tekju- og eignaminni leigjendur

Þann 5. mars sl. var opnað fyrir umsóknir vegna næstu úthlutunar stofnframlaga ríkisins til almennra leiguíbúða. Aldrei hafa borist fleiri umsóknir um stofnframlög en nú og er heildarfjárhæð stofnframlaga ríkisins sem sótt er um rúmir 6 milljarðar króna. Sótt er um stofnframlög vegna 915 íbúða, þar af til byggingar á 619 íbúðum og kaupum á 296 íbúðum sem ætlaðar eru tekju- og eignaminni leigjendum, svo sem námsmönnum, öldruðum, fötluðum og skjólstæðingum félagsþjónustu sveitarfélaga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus