fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór ræddi við utanríkisráðherra Tyrklands: „Verður eitt yfir alla að ganga“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 11. júní 2019 14:25

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ræddi í morgun í síma við Mevlüt Çavuşoğlu, utanríkisráðherra Tyrklands, um komu tyrkneska karlalandsliðsins í knattspyrnu hingað til lands á sunnudaginn.

Í samtalinu, sem var að ósk tyrkneska ráðherrans, lét Çavuşoğlu í ljós vonbrigði með framkvæmd öryggiseftirlits og vegabréfaskoðunar á Keflavíkurflugvelli og óskaði skýringa á henni. Guðlaugur Þór útskýrði málið út frá sjónarhóli íslenskra stjórnvalda og áréttaði að framkvæmdin hefði að öllu leyti verið í samræmi við hefðbundið verklag og óskir um sérstaka hraðmeðferð, sem alla jafna stæði íþróttaliðum ekki til boða, hefðu borist of seint. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu:

„Mér þykir leitt að tyrkneska landsliðið hafi haft neikvæða upplifun af komunni til Íslands því að við leggjum mikið upp úr að taka vel á móti erlendum gestum okkar. Hins vegar verður eitt yfir alla að ganga og venjubundnu verklagi var fylgt í hvívetna. Þetta skýrði ég út fyrir Çavuşoğlu og um leið lýsti ég yfir undrun vegna viðbragða tyrkneskra stjórnvalda, sem væru mun harðari en tilefni gæfi til. Á endanum snýst koma tyrkneska liðsins hingað til lands um knattspyrnu og ég vonast til að allir geti nú einblínt á leikinn í kvöld, sem efalítið verður spennandi,“

segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki