Ármann Þorvaldsson hefur óskað eftir því að hætta sem forstjóri Kviku. Tekur hann við stöðu aðstoðarforstjóra, sem Marinó Örn Tryggvason hefur gegnt frá 2017. Mun Marinó taka við af Ármanni sem forstjóri.
Þetta kemur fram í tilkynningu Kristínar Pétursdóttur, stjórnarformansn Kviku til Kauphallarinnar:
„Það er komið að ákveðnum tímamótum hjá Kviku, nú þegar tvö ár eru liðin frá því að Ármann og Marinó hófu störf hjá bankanum. Ármann óskaði fyrir stuttu eftir því að breyta starfsskyldum sínum og það leiddi til þeirrar niðurstöðu að Ármann og Marinó skipta um hlutverk. Þeir hafa unnið vel saman og byggt upp, ásamt öðrum stjórnendum og starfsmönnum, öflugan banka. Ármann mun sinna daglegum rekstri í minna mæli en Marinó hefur gert en þess í stað einbeita sér að öflun viðskiptatækifæra. Ég vænti þess að breytingarnar leiði til enn aukinnar áherslu á tekjuöflun, auk þess sem reynsla og þekking Marinós mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu bankans.“
Ármann segist ekki hafa áhuga á forstjórastarfinu til langframa:
„Það hefur verið einkar ánægjulegt að stýra farsælum rekstri Kviku á undanförnum tveimur árum. Skráning á markað og þær sameiningar sem bankinn hefur ráðist í hafa gengið vonum framar og góð rekstrarniðurstaða hefur skilað sér í prýðilegri ávöxtun hluthafa bankans á þessu tímabili. Á sama tíma hefur verið lagður grunnur að ýmsum spennandi verkefnum sem geta skapað verðmæti fyrir hluthafa bankans á næstu misserum.
Forstjórastarf í banka felur í sér umtalsverðar stjórnunarlegar skyldur sem ég hef ekki áhuga á að sinna til langframa. Hins vegar hef ég mikinn áhuga á að starfa áfram með því frábæra fólki sem vinnur hjá Kviku og vil einbeita mér að verkefnum sem snúa að því að styrkja tengsl við viðskiptavini og þróa viðskiptatækifæri. Uppbyggingin á starfsemi bankans í Bretlandi hefur gengið mjög vel á undanförnum árum og ljóst að þar eru sóknartækifæri til framtíðar fyrir Kviku. Með þessari breytingu tel ég að hægt sé að nýta betur reynslu mína, þekkingu og tengsl í Bretlandi til þess að styðja við áframhaldandi vöxt þar.
Ég fagna því mjög að geta starfað áfram með nýjum forstjóra, Marinó Erni Tryggvasyni, en samstarf okkar hingað til hefur gengið frábærlega og ég tel að hann muni leiða bankann farsællega.“
Þá segir Marinó:
„Á undanförnum tveimur árum hefur verið sérstaklega gefandi að kynnast og vinna með starfsmönnum bankans. Hjá Kviku starfar hópur öflugra starfsmanna sem verður gaman að starfa áfram með. Starfsumhverfi fjármálafyrirtækja er að breytast og Kvika er í einstakri stöðu til þess að nýta tækifæri framtíðarinnar. Það er spennandi verkefni að halda áfram að byggja upp öflugt fjármálafyrirtæki með stjórn og starfsmönnum bankans.“