fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Sigurður Ingi: „Setjum kraft í orkuskipti í samgöngum“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 24. maí 2019 19:00

Sigurður Ingi Jóhannsson. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti í gær ávarp á aðalfundi alþjóðasamtaka samgönguráðherra (ITF) í Leipzig sem haldinn er dagana 22.-24. maí. Viðfangsefni fundarins er að fjalla um samþættingu samgöngugreina við ferðaþjónustu, upplýsingatækni og orkustefnu annars vegar og samgöngur og mikilvægi þeirra fyrir vöxt byggða og svæða hins vegar.

Fundurinn er stærsti sameiginlegi viðburður samgönguráðherra í heiminum og helsti vettvangur skoðanaskipta í stefnumótun á sviði samgangna. Auk ráðherra sækir fundinn áhrifafólk úr stjórnmálum, atvinnulífi, félagasamtaka auk háskóla- og rannsóknasamfélagsins.

Sigurður Ingi tók virkan þátt í nokkrum skipulögðum viðburðum aðalfundarins samkvæmt tilkynningu. Hann flutti ávarp á málstofu sem sérstaklega var helguð mikilvægi samgangna fyrir ferðaþjónustu og tók einnig þátt í pallborði.

Orkuskipti lykilatriði

Sigurður Ingi skrifaði um erindi sitt á Facebook:

„Aðgengi að endurnýjanlegri orku er mjög mismunandi hjá þjóðum heims. Á fundi samgönguráðherra í Leipzig voru orkuskipti í samgöngum rædd. Í ræðu minni sagði ég að ekki væri umhverfisvænt að framleiða rafmagn með kolum fyrir bíla og önnur samgöngutæki. Einstaka lönd eru í fararbroddi, en áskorunni – á heimsvísu – verður ekki mætt nema með samvinnu allra. Við Íslendingar erum i kjöraðstæðum – eigum næga græna orku – orku sem við stjórnum sjálf hvernig er nýtt. Spörum gjaldeyri (25-30 ma.) og setjum kraft í orkuskipti í samgöngum.“

Sigurður Ingi sagði að vöxtur í ferðaþjónustu á Íslandi væri fordæmalaus með tilheyrandi álagi á samgöngukerfið. Forgangsröðun í uppbyggingu hafi verið að tryggja umferðaröryggi en einnig að sinna endurbótum og auka þjónustu á vegum. Brýnt væri að samþætta ólíka samgöngumáta, nýta kosti hvers fyrir sig til að bæta samgöngur almennt, s.s. innanlandsflug, almenningsvagna, ferja í stað þess að stilla þeim upp á móti hver öðrum. Að því væri unnið í heildarstefnu um almannasamgöngur.

Sigurður Ingi sagði Íslendinga hafa lagt aukna áherslu að tryggja öryggi og umhverfislega sjálfbærni og styrkja grundvöll ferðaþjónustunnar. Sjálfbær þróun í samgöngum væri lykilþáttur í að ferðaþjónusta geti haldið áfram að vaxa. Með samþættingu samgöngugreina skapast mikil tækifæri fyrir jafnara aðgengi að þjónustu fyrir landsbyggðina og möguleikar til að nýta tækifæri sem felast í ferðaþjónustu. Bættar samgöngur auki möguleika svæða og byggða til þróunar ferðaþjónustu með tilheyrandi efnahagslegum ávinningi.

Áætlanir gera ráð fyrir fjórföldun í flugi fyrir árið 2050 og því mikilvægt að hraða þróun á umhverfisvænum samgöngumátum til að mæta þessari áskorun. Forsenda þess að ferðaþjónusta vaxi áfram sem atvinnugrein er að allir aðilar, hvort sem það eru stjórnvöld, fyrirtæki eða ferðafólkið sjálft, taki virkan þátt í að tryggja að umhverfisfótspor greinarinnar aukist ekki í takt við umsvif.

Sameiginleg yfirlýsing allra ráðherra
Sigurður Ingi ávarpaði loks sameiginlegan aðalfund samgönguráðherranna allra 60 aðildarríkjanna þar sem hann lýsti stuðningi við sameiginlega yfirlýsingu ráðherranna. Í ávarpi sínu lagði hann áherslu á mikilvægi þess að okkur auðnist að nýta til góðs þau miklu tækifæri sem felast í nýjum lausnum, m.a. deiliþjónustum og samþættingu allra samgöngugreina.

Samhljómur var meðal ráðherranna um að beisla neikvæð ytri áhrif samgangna á umhverfi, heilsu og samfélög. Baráttan gegn loftslagsbreytingum væri alþjóðleg áskorun og þarfnaðist samvinnu þvert á landamæri sem undirstrikar mikilvægi fundar sem þessa.

Alþjóðasamtök samgönguráðherra (ITF) eru stærstu alþjóðleg samtök innan OECD sem hafa það markmið að stuðla að samvinnu þjóða í málefnum samgangna. Samtökin standa að viðamiklum rannsóknum sem ætlað er að undirbyggja stefnumótun á öllum sviðum samgangna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki