Skrifstofa framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg sakar Fréttablaðið um rangfærslur. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að umhverfis- og skipulagssvið hafi greitt 395 milljónir án útboðs til sérfræðinga. Þessi fullyrðing segir Ásmundi V. Brynjólfsson, skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds, ranga og að mikillar ónákvæmni gæti í fréttaflutningi Fréttablaðsins.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
„Mikillar ónákvæmni gætir í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag þar sem því er haldið fram að umhverfis- og skipulagssvið hafi greitt 395 milljónir án útboðs til sérfræðinga. Þetta er rangt. Af þessum 395 milljónum voru um 75 milljónir sem fóru í gegnum útboð eða verðfyrirspurn, 127 milljónir voru greiddar vegna laga um höfundarrétt í kjölfar samkeppni sem kemur beinlínis í veg fyrir útboð. Þá voru greiddar 184 milljónir með beinum kaupum á þjónustu þar sem gerður er samningur við viðkomandi fyrirtæki. Þá er það mat sviðsins að þótt rammasamningar séu nú í undirbúningi er alls óvíst hvort þeir skili eins miklum ávinningi og haldið er fram í ljósi þess að Reykjavíkurborg fær hagstæð verð frá þjónustuaðilum vegna gríðarlegs umfangs starfseminnar.“
Ásmundi segir kaup á þjónustu hjá umhverfis- og skipulagssviði séu afar umfangsmikil. „Enda stendur yfir eitt mesta uppbyggingarskeið í sögu borgarinnar“. Þegar þjónusta sé keypt inn á sviðinu sé fengið verð, gerður samningur og síðan unnið á grundvelli tímaáætlunar. Með þessu móti verði útgjöldin fyrirsjáanleg.
„Öll stærri verkefni eru boðin út í opnum útboðum eða verðfyrirspurnir gerðar þar sem haft er samband við nokkur fyrirtæki og fengin tilboð í viðkomandi verk. Þá eru kaup byggð á lögum um höfundarrétt og kaup af arkitektum í kjölfar hönnunarsamkeppna einnig umfangsmikil.“
Í tilkynningu segir jafnframt að verið sé að undirbúa rammasamninga vegna kaupa á sérfræðiþjónustu, en hins vegar sé „alls óvíst er hversu miklu slíkir samningar myndu skila enda fær sviðið hagstæð verð hjá verkfræði- og arkitektastofum sem umfangsmikill þjónustukaupandi.“
Innkaupamál borgarinnar hafi verið í endurskoðun og nýverið hafi verið samþykktar endurskoðaðar innkaupareglur en auk þess sé verið að efla innkauparáð og vinna að ofangreindum rammasamningum.
„Hér að neðan er sundurliðun vegna kaupa á sérfræðiþjónustu á umhverfis- og skipulagssviði á fyrsta ársfjórðungi 2019 sem fram kemur í yfirliti sem lagt var fram í innkauparáði 23. maí 2019:“