Hlé var gert á þingfundi í morgun klukkan 9.04, en hann hófst klukkan 15.30 í gærdag. Er þetta því sá þingfundur sem lengst hefur staðið fram á morgun, samkvæmt mbl.is.
Ástæðan er málþóf Miðflokksmanna um þriðja orkupakkann en umræðurnar stóðu yfir í tæpar 16 klukkutíma. Miðflokkurinn sló því eigið met frá því á miðvikudag, en þá hafði þingfundur staðið yfir frá 13.30 deginum áður til klukkan 8.41 um morguninn, eða í 19 tíma alls.
Fyrra metið hafði verið frá árinu 1996, þegar umræður stóðu til 7.59 um morguninn, en þá var rætt um öryggi raforkuvera.
Á árum áður voru dæmi um lengri fundi, til dæmis frá 1984 þegar kvótafrumvarpið varskeggrætt, en þá skiptist Alþingi í efri og neðri deild.