fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Útrásarvíkingar toppuðu Everest – Lýður náði alslemmu – Tveir létu lífið

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 23. maí 2019 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lýður Guðmundsson, sem kenndur er við Bakkavör og Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, náðu báðir á toppinn á Everest fjalli í morgun, hæsta fjalli heims. Ekki er vitað hvor var á undan, en þeir voru alltént áttundi og níundi Íslendingurinn sem náði þessu afreki.

Með í för var Leifur Örn Svavarsson, sem toppaði Everest árið 2013. Mbl.is greindi fyrst frá, en rætt var við Sigrúnu Hrönn, eiginkonu Leifs, í Bítinu á Bylgunni í morgun, þar sem fram kom að Lýður Guðmundsson hefði einnig náð þessum áfanga og meira til, þar sem hann varð þriðji Íslendingurinn til að ná svokallaðri alslemmu:

„Með þessari ferð í nótt þá klárar Lýður það sem er kallað adventure Grand slam, sem eru sjö hæstu tindar hverrar heimsálfu og báðir pólarnir,“

sagði Sigrún, en Leifur náði þeim áfanga einnig árið 2013.

Fyrstir Íslendinga voru Björn Ólafsson, Einar K. Stefánsson og Hallgrímur Magnússon árið 1997.

Haraldur Örn Ólafsson toppaði 2002 og náði þar með fyrstur Íslendinga hinni ótrúlega alslemmu.  Þeir Ingólfur Geir Gissurarson og Leifur Örn náðu toppi Everest árið 2013. Ingólfur var tveimur dögum á undan og var jafnframt elsti Íslendingurinn sem hafði það gert, stóð á fimmtugu og var eini íslenski afinn sem hafði gengið á Everest, samkvæmt mbl.is.

Leifur er sá eini sem fór upp norðurleiðina, sem er sögð erfiðari en suðurleiðin, sem flestir fara.

Árið 2017 náði Vilborg Arna Gissurardóttir þessu afreki, fyrst íslenskra kvenna.

Tveir fjallgöngumenn, frá Bandaríkjunum og Indlandi, létust á Everest fjalli í gær, en margir freista þess að klífa þetta hæsta fjall heims um þessar mundir, þar sem maí þykir best til þess fallinn, veðurlega séð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun