Alls 16 manns var sagt upp hjá Íslandsbanka í morgun, samkvæmt Fréttablaðinu. Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka, segir þær tengdar hagræðingaraðgerðum bankans, en sagt var upp fólki í ýmsum deildum innan bankans:
„Partur af þessu eru breytingar á útibúum í Höfða og í Granda þar sem núna verður hægt að nálgast einfaldari ráðgjöf. Við erum að færa ráðgjafaþjónustuna í önnur útibú.“
Hagnaður allra þriggja stóru viðskiptabankanna dróst saman árið 2018. Mest hjá Arion banka, sem hagnaðist um 7,8 milljarða, sem er um helmingi minni hagnaður en árið á undan.
Þá kemur Íslandsbanki, sem hagnaðist um 10,6 milljarða 2018, en 13,2 milljarða árið 2017.
Landsbankinn stóð sig best, hagnaðist um 19,3 milljarða 2018, en 19,8 milljarða 2017.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, þénaði 56,9 milljónir í fyrra í föstum launum og árangurstengdar greiðslur voru 3,9 milljónir. Heildarlaunin voru því 63,5 milljónir.