fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Sólveig Anna um „verstu sortina“ af kapítalista: „Maðurinn sem SA ganga nú fram fyrir skjöldu til að verja“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 21. maí 2019 10:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Efling hefur krafist fundar með framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, í húsakynnum ríkissáttasemjara vegna vanefnda á nýundirrituðum kjarasamningi, samkvæmt tilkynningu frá Eflingu:

Málið kemur til vegna hópuppsagnar hótelstjórans Árna Vals Sólonssonar á launakjörum starfsfólks síns umsvifalaust eftir samþykkt kjarasamninganna. Segir í uppsagnarbréfinu að  þetta sé „til að lækka launakostnað“ vegna „væntanlegs kostnaðarauka“.

Bréf var sent á Árna Val, sem stýrir CityPark, CityCenter og CapitalInn hótelunum, til að fá skýringar á þessu. Rekstrarfélög Árna Vals tilheyra Samtökum atvinnulífsins, svo þau voru líka beðin um viðbrögð.

Miðstjórn ASÍ lýsti því yfir í kjölfarið að stéttarfélögum væri áskilinn réttur til að rifta kjarasamningum gagnvart þeim atvinnurekendum sem ekki virtu þá sem samið hefur verið um. Þar með væru lögmætar þvingunaraðgerðir á borð við verkföll í spilinu.

„Við semjum í góðri trú, með það að markmiði að bæta kjör félagsmanna okkar. Þetta er blaut tuska í andlitið, að bregðast við með því að fella niður kjör sem starfsmenn hafa notið. Það er engu líkara en verið sé að refsa félagsmönnum fyrir að hafa samið um launahækkun,“

segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar.

Samtök atvinnulífsins hafa nú sent bréf til Eflingar þar sem þau þverneita að þetta séu undanbrögð vegna launahækkana í kjarasamninginum. Engin skýring er gefin á þeim orðum uppsagnarbréfsins, sem starfsmönnum var skipað að skrifa undir á staðnum, að „væntanlegur kostnaðarauki“ væri ástæða uppsagnanna.

Versta sort kapítalista

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er hneyksluð yfir því að SA skuli verja Árna Val Sólonsson, hótelstjóra:

„Þau eru einfaldlega að kóa með verstu sort af kapítalista. Þeirri sort sem er til í að setja fólk á strípaðan taxta þegar þau semja um launahækkun, þeirri sort sem reynir að stækka hótelið sitt í leyfisleysi síðasta haust, sem bjó svo illa um byggingarverkamennina að það þurfti að loka framkvæmdunum því þeir voru taldir í lífshættu. Manni sem reyndi að koma í veg fyrir að starfsfólkið hans fengi að kjósa um verkfallið sitt. Manni sem hefur oft stært sig af að borga starfsfólkinu sínu meira en aðrir hótelstjórar, sem er einfaldlega ósatt. Manni sem sagði að hann ætlaði að búa til sitt eigið stéttarfélag fyrir starfsfólkið sitt, því honum fannst Efling ekki nógu gott. Þetta er maðurinn sem SA ganga nú fram fyrir skjöldu til að verja.“

Viðar Þorsteinsson segir allan kjarasamninginn við SA vera í húfi. „Spurningin er hvort samtökin séu að gefa grænt ljós á allsherjar vanefndir á kjarasamningnum sem þau undirrituðu sjálf.“

Sjá einnig: Árni ræðst á Sólveigu:„Þessi kelling þarna, kommúnistinn“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins