fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Ný innkaupastefna dragi úr umhverfisáhrifum

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 20. maí 2019 11:07

Kristján Þór Júlíusson. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag var samþykkt tillaga Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila. Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári og sem stórkaupandi getur það haft víðtæk áhrif á eftirspurn eftir matvælum, stuðlað að umhverfisvænum innkaupum, dregið úr kolefnisspori  og eflt nýsköpun. Vonast er til að stefnan verði fordæmisgefandi fyrir sveitarfélög og aðra. Kjarni stefnunnar  er að innkaup ríkisaðila á matvælum byggi á markmiðum um sjálfbærni, góða lýðheilsu og umhverfisvitund.

Innkaupastefnan var unnin á vettvangi Matarauðs Íslands í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Við vinnslu stefnunnar var haft víðtækt samráð við hagaðila og drög að stefnunni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í mars 2019.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: „Ég fagna því að ríkisstjórnin hafi samþykkt innkaupastefnu fyrir opinber innkaup matvæla sem byggir á því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum við framleiðslu, flutninga og umsýslu matvæla. Í stefnunni er lögð áhersla á að máltíðir í mötuneytum séu í samræmi við ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði og að neytendur séu upplýstir um uppruna og næringargildi matarins. Það er mín trú að stefnan muni efla íslenska matvælaframleiðslu og veita henni enn frekari tækifæri til nýsköpunar og þróunar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus