Fyrirhuguð bygging nýrra höfuðstöðva Landsbankans á Austurbakka, sem verður 16.500 fermetrar, mun kosta um níu milljarða. Landsbankinn hyggst þó aðeins nota um 60% af byggingunni, afgangurinn verður leigður út sem nýtast mun fyrir verslanir og aðra þjónustu.
Þetta kom fram á kynningu Halldóru Vífilsdóttur, arkitekt og verkefnisstjóra Landsbankans, á opnum fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur á föstudag og greint er frá á vef Reykjavíkurborgar.
„Markmiðið með flutningi Landsbankans í nýtt hús við Austurbakka í Reykjavík er að ná fram hagræðingu, auka skilvirkni og mæta kröfum um breytt vinnulag í fjármálaþjónustu,“
sagði Halldóra, en Landsbankinn hefur verið gagnrýndur fyrir kostnaðinn af Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, sem sagði:
„Hvernig í veröldinni getur almenningur sætt sig við að ríkisbanki telur sig þurfa að staðsetja sig á dýrasta stað bæjarins þegar fyrir liggur að glæsileg 16.000 fm. Skrifstofubygging í Kópavogi ásamt 9.000 fm. Bílakjallara stendur tóm og er til sölu samkvæmt heimasíðu ÞG verktaka á 3,6 milljarða. Er snobbið fyrir fjármálafyrirtækjum orðið svo yfirgengilegt að ekkert dugi nema rándýrar gullslegnar glerhallir á dýrustu stöðum undir starfsemi sem skilar engum raunverulegum verðmætum til samfélagsins?“