fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Nýskráning í heimagistingu fimmfaldaðist- „Það er þó ennþá verk að vinna“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 14. maí 2019 13:13

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að frumkvæði ferðamálaráðherra var eftirlit sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu með heimagistingu stóraukið í fyrra með átaksverkefninu Heimagistingarvakt. Árangurinn var ótvíræður: Tíðni nýskráninga í heimagistingu fimmfaldaðist í kjölfar átaksins, skráðum eignum fjölgaði um nær 100% á milli ára og áætlað er að óskráðum og leyfislausum gististöðum hafi fækkað um meira en 30% samkvæmt tilkynningu, en um 3000 ábendingar bárust um óleyfilega heimagistingu.

Engu að síður er áætlað að um helmingur allrar skammtímaleigu fari enn fram án tilskilinna leyfa eða skráningar.

Ferðamálaráðherra hefur nú á Alþingi mælt fyrir frumvarpi sem ætlað er að tryggja betur en áður að gildandi reglum sé fylgt. Í frumvarpinu felst að heimilt verður að sekta eigendur heimagistingar fyrir að skila ekki inn nýtingaryfirliti. Í öðru lagi er lagt til að sektarheimildir vegna gistingar sem er rekstrarleyfisskyld færist frá lögreglu til sýslumanns og verði þannig á sömu hendi og sektarheimildir vegna heimagistingar.

„Það er mikilvægt fyrir samfélagið allt að reglur séu ekki bara sanngjarnar heldur að þeim sé líka fylgt. Heimagisting er góð og skynsamleg leið til að nýta kosti deilihagkerfisins en við þurfum að passa að hún sé ekki misnotuð til að skapa óeðlilegt samkeppnisforskot á leyfisskyldan atvinnurekstur. Árangurinn af heimagistingarvaktinni er ánægjulegur, bæði fyrir nærumhverfi fólks og fyrir þá sem stunda löglegan rekstur. Það er þó ennþá verk að vinna og ég tel að þetta nýja frumvarp verði enn eitt skrefið í rétta átt,“

segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“