Þrátt fyrir að einungis Miðflokkurinn og Flokkur fólksins séu á móti 3. orkupakkanum á þingi og engar líkur séu á öðru en að málið fari þar í gegn með yfirgnæfandi meirihluta bæði stjórnarflokkanna og svo hinna þriggja stjórnarandstöðuflokkanna, Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar, þá gæti þetta orðið ansi mikið pólitískt hitamál og það tekið á ríkisstjórnina.
Andstæðingar orkupakkans fara nú mikinn í fjölmiðlum og hafa meðal annars opnað vef sem kallast Orkan okkar. Þar er fólk hvatt til að skrifa undir og segja nei við orkupakkanum.
Þarna má líka sjá lista yfir þá sem leiða baráttuna gegn orkupakkanum. Þar er að finna marga sem hafa starfað með Heimssýn og svo blöndu af fólki sem hefur starfað með ýmsum stjórnmálaflokkum, þarna eru Sjálfstæðismenn, VG-arar, Framsóknarmenn, íhaldsmenn og sósíalistar, Vigdís Hauks og Ólafur Ísleifsson og svo vekur athygli að þarna í hópnum er líka að finna Ómar Ragnarsson og Jón Baldvin Hannibalsson– í ráðherratíð sinni leiddi hann Ísland inn í EES.
Eins og fyrr segir verður orkupakkinn örugglega samþykktur í þinginu. Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur fundið leið til að sætta að minnsta kosti þingflokkinn og hún virðist ætla að duga þar. Utan þings er hins vegar andstaða og það þarf ekki að leggjast í mikla rannsóknarvinnu til að sjá að Davíð Oddsson, núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, er andsnúinn málinu. Það er forveri hans, Styrmir Gunnarsson, líka. Hann hefur spáð hamförum innan Sjálfstæðisflokksins verði pakkinn samþykktur.
Í þinginu þarf að greiða atkvæði um þingsályktanir sem tengjast orkupakkanum og síðan lög þar að lútandi. Ekki finnst manni ólíklegt að eftir muni andstæðingar orkupakkans reyna að höfða til Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að samþykkja ekki lögin. Það er líka ljóst að Miðflokkurinn ætlar að gera sér eins mikinn mat úr málinu og hann getur – og þannig ná aftur vopnum sínum. Maður heyrir vissan enduróm frá Icesave. Hér er mynd sem birtist á áðurnefndum vef, Orkunni okkar, og sýnir andstæinga orkupakkans þar sem þeir fóru á fund Guðna forseta.