Svona lítur hún út, ný gata í miðbænum – liggur frá Hafnarstræti og yfir að Hörpu. Maður þarf þá varla að berjast lengur yfir vindasamt eyðisvæði til að komast að tónlistarhúsinu. Þarna ætti að vera skjól.
Það er hins vegar spurning með sól – líklega verður hún ekki sérlega sólrík þessi gata.
Auðvitað eiga eftir að koma búðir og veitingahús þarna, með skiltum og ljósum, það verður væntanlega líflegra. En hins vegar var talað um það í fyrra að Hafnartorg yrði komið í „fullan rekstur“ um miðjan apríl – sem er að renna upp.
Ennþá virðist nokkuð langt í það. Það eru varla neinar búðir nema H&M komnar á Hafnartorgið ennþá og spurn eftir íbúðum og skrifstofuhúsnæði er sáralítil. Ætli megi ekki skrifa það á eftirspurnarvanda?
En gatan er að sönnu ólík því sem við höfum átt að venjast í miðbænum. Hún er óvenju symmetrísk – í hverfi þar sem byggðin er dálítið mikið hippsum happs, húsin misjöfn hvað varðar stærð og stíl og frá ýmsum tímabilum.