Kjartan Hreinn Njálsson, einn ritstjóra Fréttablaðsins, verður aðstoðarmaður Landlæknis, Ölmu Möller. Frá þessu er greint á Vísi.is.
Starfið var auglýst fyrir rúmlega ári síðan. Kjartan sagði starfi sínu lausu fyrr í þessum mánuði, en hann tók við stöðu ritstjóra Fréttablaðsins í júní í fyrra, samhliða Ólöfu Skaftadóttur.
Kjartan starfaði áður sem fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis á sjö ára blaðamannaferli sínum.