fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Þrír nýir skrifstofustjórar í félagsmálaráðuneytinu

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 17. apríl 2019 13:51

Frá vinstri: Erna Kristín Blöndal, Gunnhildur Gunnarsdóttir og Bjarnheiður Gautadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur í samræmi við nýtt skipurit félagsmálaráðuneytisins skipað þrjá nýja skrifstofustjóra til starfa í ráðuneytinu: Ernu Kristínu Blöndal yfir skrifstofu barna- og fjölskyldumála, Gunnhildi Gunnarsdóttur yfir skrifstofu húsnæðis- og lífeyrismála og Bjarnheiði Gautadóttur yfir skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við mat sérstakrar hæfnisnefndar sem skipuð var til að meta hæfi umsækjenda.

Erna Kristín Blöndal nýr skrifstofustjóri barna- og fjölskyldumála tekur við embætti 1. maí næstkomandi. Hún er með BA- og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og stundar doktorsnám í lögfræði á sviði mannréttindamála við sama skóla. Erna Kristín hefur víðtæka reynslu af opinberri stjórnsýslu og stjórnunarstörfum. Hún starfaði sem lögfræðingur og verkefnastjóri hjá innanríkisráðuneytinu (nú dómsmálaráðuneytinu) frá 2009 – 2016. Frá 2014 var hún sérfræðingur þverpólitískrar þingmannanefndar um endurskoðun útlendingalaga og framkvæmdastjóri norrænnar stofnunar um fólksflutninga frá 2016-2018. Síðastliðið ár hefur hún starfað sem verkefnastjóri hjá félagsmálaráðuneytinu og leitt vinnu sem lýtur að endurskoðun barnaverndarlaga og innleiðingu á snemmtækri íhlutun.

Gunnhildur Gunnarsdóttir nýr skrifstofustjóri húsnæðis- og lífeyrismála tekur við embætti 1. júní næstkomandi. Hún er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands frá árinu 1992 og hlaut réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður árið 1995. Gunnhildur hefur mikla reynslu af stjórnun og starfsmannahaldi ásamt víðtækri þekkingu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Hún gegndi stjórnarstörfum hjá Íbúðalánasjóði á árum 1999 – 2015 og var meðal annars aðstoðarframkvæmdastjóri og yfirmaður rekstrarsviðs. Gunnhildur hefur að undanförnu gengt starfi lögfræðings hjá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar.

Bjarnheiður Gautadóttir hefur frá janúar 2019 verið staðgengill setts skrifstofustjóra á skrifstofu lífskjara og vinnumála og verið settur skrifstofustjóri á skrifstofu vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar frá febrúar 2019. Hún verður formlega sett í embætti 1. maí næstkomandi. Bjarnheiður er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands frá árinu 2006. Hún hefur starfað sem sérfræðingur á sviði vinnumarkaðsmála í félagsmálaráðuneytinu (áður velferðarráðuneytið/félags- og tryggingamálaráðuneytið) frá 2006. Bjarnheiður hefur meðal annars haft umsjón með innleiðingu tilskipana frá Evrópusambandinu og leitt nefndir og vinnuhópa í tengslum við gerð lagafrumvarpa og reglugerða í samvinnu við hagsmunaaðila. Eins tekið þátt í starfi norrænnar nefndar á sviði vinnuréttar.

Skipað er í embætti skrifstofustjóra til fimm ára í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega