Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu að matsáætlun með athugasemdum vegna fyrirhugaðra endurbóta á kísilverksmiðjunni í Helguvík, Reykjanesbæ. Gera þarf ýmsar ráðstafanir áður en verksmiðjan verður keyrð í gang að mati Skipulagsstofnunar, til dæmis að hafa samráð við íbúa svæðisins, samkvæmt tilkynningu.
Um er að ræða heildaframleiðslu allt að 100.000 tonnum af kísli á ári í allt að fjórum ljósbogaofnum, stækkun og endurbótum á núverandi mannvirkjum kísilverksmiðjunnar til að uppfylla skilyrði Umhverfisstofnunar. Í ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu að matsáætlun er fjallað um heilsu, samráð, samfélag, ásýnd, valkosti, mengun, veður, fráveitu, grunnvatn og vöktun.
Athugasemdir Skipulagsstofnunar í ákvörðun sinni eru eftirfarandi:
Ákvörðun Skipulagsstofnunar í heild sinni ásamt tillögu Stakksbergs ehf. að matsáætlun má nálgast á vef Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is/umhverfismat-framkvaemda/gagnagrunnur-umhverfismats/matsaaetlanir/nr/997
Næsta skref:
Nú þegar Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu að matsáætlun er næsta skref í ferlinu að framkvæmdaaðili vinnur frummatsskýrslu og skilar henni inn til Skipulagsstofnunar þegar hún er tilbúin og þarf hún að vera í samræmi við matsáætlun.
Frummatsskýrsla
Í frummatsskýrslu setur framkvæmdaraðili fram mat sitt á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar í samræmi við matsáætlun og sendir Skipulagsstofnun skýrsluna. Stofnunin fer yfir skýrsluna og metur hvort hún sé í samræmi við matsáætlun og ákvæði laga og reglugerðar. Frummatsskýrsla er svo kynnt á vef stofnunarinnar og í fjölmiðlum ásamt því að leitað er til umsagnaraðila, en kynningartími er alls 6 vikur, á þeim tíma gefst almenningi kostur að kynna sér framkvæmdina og koma athugasemdum sínum á framfæri.