fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór vísar fjarstæðukenndum dylgjum andstæðinga orkupakkans til föðurhúsanna

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 15. apríl 2019 20:47

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyjan fjallaði í dag um kenningar andstæðinga þriðja orkupakkans varðandi félag í eigu konu utanríkisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, sem verið höfðu í dreifingu á Facebook.

Virtist tilgangurinn vera að gera stöðu Guðlaugs Þórs tortryggilega, þar sem hann var sagður eiga að græða milljarða ásamt eiginkonu sinni, sem skráður er eigandi félags sem á fasteign á svæði þar sem fyrirhugað var að reisa Búlandsvirkjun. Einnig var ýjað að því að hagsmunaskrá Guðlaugs á vef Alþingis væri óeðlileg, sem Eyjan sýndi fram á að væri ekki rétt.

Sjá nánar: Harka að færast í orkupakkamálið:Guðlaugur Þór og frú sögð græða milljarða verði virkjanaáform að veruleika

Málefnafátækt og fjarstæðukenndar dylgjur

Guðlaugur Þór hefur nú svarað þessum ávirðingum á Facebook:

Vegna fréttar Eyjunnar fyrr í dag, 15. apríl, um hagsmunaskráningu mína á vef Alþingis vil ég taka eftirfarandi fram:

1. Reglur forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings, sem einnig taka til ráðherra, taka ekki til eigna eða skulda maka. Þetta hefur skrifstofa Alþingis staðfest við mig. Hagsmunaskráning mín er í fullu samræmi við þessar reglur.

2. Ágústa Johnson, eiginkona mín, hefur verið í eigin atvinnurekstri í rúma þrjá áratugi eins og flestum landsmönnum ætti að vera kunnugt um. Jörðin sem um ræðir er skógræktarjörð sem tengdaforeldrar mínir hafa ræktað upp síðan 1982. Félag, sem er í eigu Ágústu, keypti jörðina árið 2015 en hún hafði verið til sölu í nokkur ár þar á undan.

3. Allt tal um að mín fjölskylda hagnist á Búlandsvirkjun, hvað þá um milljarða króna, er fjarstæðukennt. Búlandsvirkjun er ekki í orkunýtingarflokki núgildandi rammaáætlunar. Hvorki ég né fjölskylda mín eigum nokkra aðild að áformum um þá virkjun. Ef svo ólíklega færi að hún yrði að veruleika yrðu áhrifin á Tungufljót og umhverfi þess afar neikvæð. Vonandi eru allar hugmyndir um þessa virkjun út af borðinu um alla framtíð. Um það erum við fjölskyldan öll sammála.

4. Samþykkt eða höfnun þriðja orkupakkans hefur engin áhrif á hagsmuni landeigenda á hugsanlegum virkjanasvæðum enda fjallar þriðji orkupakkinn hvorki um eignarhald né nýtingu á auðlindum. Staðreyndin er enn fremur sú að með innleiðingu þriðja orkupakkans eins og lagt er til eru settar enn frekari skorður við lagningu rafmagnssæstrengs en nú eru við lýði.

5. Dylgjur sem fram koma í ofangreindri umfjöllun Eyjunnar bera vitni um málefnafátækt þeirra sem hafa ákveðið að berjast gegn þriðja orkupakkanum með öðru en rökum. Vonandi verður hægt að ræða þetta mál með málefnalegri hætti í framtíðinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun