fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Brynjar segir rangt að kalla andstæðinga Þriðja orkupakkans popúlista og öfgamenn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 13. apríl 2019 09:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er alrangt að uppnefna þá sem berjast gegn innleiðingu þriðja orkupakkans, segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðislflokksins. Mikill styrr stendur um þetta flókna hagsmunamál og margir óttast að innleiðing orkupakkans, sem greiðir fyrir frjálsum viðskiptum með orku milli Íslands og umheimsins ef sæstrengur verður lagður til landsins, muni leiða til þess að Íslendingar missi yfiráðin yfir orkuauðlindum sínum.

Brynjar segir í pistli frá því í gær:

„Uppnefni, eins og populistar, öfga-þjóðernishyggjumenn og einangrunarsinnar, gagnvart þeim sem eru á móti eða hafa efasemdir um innleiðingu 3ja orkupakkans, eru afskaplega hvimleið. Hef átt samtöl við marga efasemdamenn og verð ekki var við þessi einkenni enda allir þeirrra skoðunar að frjáls viðskipti milli þjóða sé mikilvægt hagsmunamál. Forsenda frjálsra viðskipta milli þjóða er sjálfstæði þeirra og fullveldi og það ásamt hæfilegri þjóðernisvitund og samkennd er svo forsenda þess að við getum kallað okkur þjóð.“

En hver er afstaða Brynjars sjálfs í málinu?

Brynjar var lengi efasemdarmaður í þessum efnum en segir viðhorf sín hafa breyst:

„Frá því að þessi 3ji orkupakki leit dagsins ljós lýstu flestir ef ekki allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins því yfir að þeir myndu ekki samþykkja orkupakkann ef í honum fælist yfirráð annarra yfir orkuauðlindum okkar og orkufyrirtækjum eða ákvörðun um lagningu sæstrengs væri í höndum annarra en okkar. Hvað þá ef í honum fælist afsal á fullveldi okkar. Með þau skilaboð fóru ráðherrar okkar í mikla vinnu til að tryggja með skýrum hætti að öll yfirráð og ákvarðanir hvað þetta varðar væri í okkar höndum. Hefur sú vinna skilað því að ég er ekki efasemdamaður lengur og mun ekki setja EES samninginn, sem hefur skilað okkur meira en nokkuð annað í seinni tíð, í uppnám með því að hafna 3ja orkupakkanum. Ég er ekki mikið fyrir að keyra út í skurð og vona að ég komist upppúr honum klakklaust, ef ég þarf þess ekki.

Þetta er mín skoðun í hnotskurn sem ég vildi koma á framfæri. Eðlilega fylgja þessu máli miklar tilfinningar og ég tek því við gusum fram eftir kvöldi. Ég vona samt að við getum tekið málefnalega og yfirvegaða umræðu um málið meðan það er til meðferðar hjá þinginu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt