fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Píratar gagnrýna höfundarréttartilskipun ESB: „Aðför að hinu frjálsa og opna Interneti“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 26. mars 2019 14:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þingflokkur Pírata mun beita sér gegn því að nýsamþykkt höfundarréttartilskipun Evrópusambandsins verði tekin upp í EES- samninginn óbreytt. Höfundarréttartilskipunin sem samþykkt var í dag á Evrópuþinginu felur í sér varhugaverða aðför að hinu frjálsa og opna Interneti,“ segir í tilkynningu frá þingflokki Pírata í dag.

 Tilskipunin felur í sér hertar kröfur um notkun og miðlun fréttaefnis á Internetinu og einnig er þjónustuveitum á borð við Facebook, Google, Youtube og í raun meginþorra vefsíðna sem leyfa notendum að hlaða upp efni, gert að ritskoða það efni sem birtist hjá þeim til að tryggja að höfundarréttarvarið efni birtist ekki á síðum þeirra.

„Slíkar sjálfvirkar síur eru ónákvæmar og tæknin enn ófullkomin sem mun leiða til þess að þjónustuveitendur munu sía út meira magn af efni en minna til að baktryggja sig fyrir lögsóknum. Slíkt er ekkert annað en ritskoðun Internetsins og ljóst að fjölmörg fyrirtæki muni ekki geta staðið undir þessum kröfum nema þau allra fjársterkustu. Mun þetta leiða til þess að minni þjónustuveitur leggjast af og mjög erfitt verður að stofna nýjar þjónustuveitur á Internetinu. Með því að láta fyrirtæki bera ábyrgð á því efni sem birtist, í stað þess að ábyrgðin sé aðeins notendanna, er verið að takmarka frelsi íbúa Evrópu til að tjá sig. Líkja mætti þessu við að símafyrirtæki á Íslandi yrðu skikkuð til að hlera öll símtöl til að tryggja að aðeins þóknanlegar upplýsingar kæmust á milli manna.“

Julia Reda, Evrópuþingmaður Pírata og helsti talsmaður gegn þessari lagasetningu, hefur verið sögð óþreytandi í baráttunni gegn frekari ritskoðun Internetsins og standa Píratar á Íslandi þétt við bakið á henni í þessari baráttu. Er hún sögð fremst í flokki hundraða sérfræðinga og tuga stofnana sem hafa mótmælt þessari vegferð, þar á meðal David Kaye, sérstaks talsmanns Sameinuðu þjóðanna um vernd tjáningarfrelsis, og Tim Berners-Lee, föður veraldarvefsins.

„Internetið er ekki staðbundið. Við sem Íslendingar notum mikið af þjónustu, fréttamiðlum og öðru frá fyrirtækjum sem staðsett eru í Evrópu. Það er því nauðsynlegt að berjast gegn hvers kyns ritskoðun og takmörkun á tjáningarfrelsi sem er hornsteinn frjálsra lýðræðisríkja,“

segir í tilkynningu Pírata.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus