Hér er nákvæma bandaríska kosningaprófið – fyrir forsetakosningarnar 2020. Það eru margar spurningar – sumar eru reyndar þess eðlis að maður þarf að hafa talsverða þekkingu á bandarískum stjórnmálum til að svara þeim. En það fylgja með útskýringar.
Svo eru líka gefnir upp margir valkostir varðandi svörin, það er ekki bara já og nei, heldur er hægt að hafa margvíslega afstöðu til mála og gefa til kynna hvort manni finnst þau skipta miklu eða litlu máli.
Það er farið í gegnum marga málaflokka, efnahagsmál, heilbrigðismál, skattamál, glæpi, fíkninefni, innflytjendamál, umhverfismál, utanríkismál og þar fram eftir götunum, en síðan eru svör manns greind í bak og fyrir og hægt að lesa út ekki bara hvaða frambjóðendur manni hugnast best, heldur líka hvar maður stendur gagnvart álitamálum samtímans og stjórnmálastefnum – en auðvitað á bandarískan mælikvarða.
Það sem telst vera vinstri í Bandaríkjunum álíta fæstir sérstaklega mikla vinstri stefnu hér á landi. Bernie Sanders þætti varla neinn sérstakur róttæklingur.
Ég get upplýst að Beto O’Rourke var efstur hjá mér í prófinu.
Prófið er semsagt hérna – þetta er nokkuð skemmtilegt.