Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka aðila í ferðaþjónustu, tjáir sig um svarta skýrslu ASÍ sem kom út í gær í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag.
Í skýrslunni var ljósi varpað á ýmislegt sem betur mætti fara á íslenskum vinnumarkaði. Til dæmis aukna jaðarsetningu og brotastarfsemi. Þá kom fram að fjögur aðildarfélög ASÍ hefðu gert 768 launakörufur árið 2018 upp á samtals 450 milljónir króna. Um helmingur allra krafna kemur úr hótel-, veitinga- og ferðaþjónustu.
Í frétt Morgunblaðsins í dag segir Jóhannes að í ungri atvinnugrein á borð við ferðaþjónustuna megi gera ráð fyrir því að það taki tíma fyrir þá sem eru nýbyrjaðir í starfsemi að átta sig á reglum, meðferð kjarasamninga og öðru slíku.
Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Miðjunnar, gagnrýnir þessi ummæli Jóhannesar harðlega á Miðjunni í dag.
„Jóhannes kýs sérstaka leið til að svara fyrir stórkostlegan launaþjófnað ferðaþjónustufyrirtækja. Í stað þess að tala um það sem vel er gert kýs Jóhannes Þór að nálgast staðreyndirnar með allt öðrum hætti. Með réttlætingu.“
Sigurjón segir þetta vera galið sjónarmið hjá Jóhannesi.
„Kjarasamningar eru ekki það flóknir að meðalmaðurinn geti ekki lesið þá, og skilið. Aumt yfirklór. Launaþjófnaður er hreint ömurlegur. Þau sem verst standa eru helst fórnarlömb óheiðarlegs fólks. Jóhannes Þór verst enn.“
Jóhannes sagði leitt að svo mikið skuli vera um brot en hann segir þetta vera heldur lægri prósentur en forseti ASÍ hefur sagt að ferðaþjónustan standi að og verkalýðshreyfingin sé að sýsla með.
„Þegar um okkar félagsmenn er að ræða, þá er gjarnan um heiðarleg mistök að ræða eða menn átta sig ekki á því hvernig reglurnar standa. Við höfum lagt áherslu á að koma réttum skilaboðum til viðkomandi aðila um að afla sér þekkingar um hvernig eigi að gera hlutina og laga það sem laga þarf.“
Sigurjón er harðorður í garð Jóhannesar vegna þessara ummæla og segir hann vera í „skítadjobbbi“.
„Áður var Jóhannes Þór aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs og var þá oftast kallaður Jóhannes útskýrari. Hann hefur engu gleymt. Jóhannes Þór er í skítadjobbi.“