Boston er mikil menningarborg, líklega eru hvergi í heiminum jafnmargir og framúrskarandi háskólar á einum stað. Þar eru líka bókabúðir sem gaman er að týna sér í. Ein sú þekktasta er Brattle fornbókabúðin sem er í miðbænum, rétt hjá skemmtigarðinum Boston Common. Eitt það skemmtilegasta við hana er hvernig þeir stilla bókum út undir beru lofti og þar er hægt að gramsa í hillunum, að minnsta kosti þegar er sæmilegt veður.
Inni í búðinni getur að líta myndir af fágætum titlum sem hafa farið um hendur bóksalanna í Brattle.
Hérna er frumútgáfa af Carrie eftir Stephen King, árituð, á 3750 dollara, árituð ljósmynd af Gandhi á 3000 dollara og frumútgáfa af Catcher in the Rye eftir Salinger á 3.500 dollara.
Ég tók ekki eftir því hvað þetta kostaði, en þetta er fræg forsíða Chichago Daily Tribune frá því í forsetakosningunum 1948. Blaðið sló því upp að repúblikaninn Thomas E. Dewey hefði sigrað Harry Truman. En staðreyndin er að kosningarnar fóru á hinn veginn, Truman varð forseti. Það sem er merkilegt við þetta eintak er að það hefur verið áritað af Truman sjálfum sem skrifar – þetta var vitleysa.
Þarna er svo frumútgáfa af einni af barnabókum Beatrix Potter, hún hefur selst á 5000 dollara og svo er það ljóðabókin Kodak eftir Patti Smith frá 1972. Hún þykir meðal annars merkileg sökum þess að kápumyndin er ein fyrsta ljósmynd sem birtist eftir Robert Mapplethorpe. Bókin hefur selst á 2500 dollara.
Þetta er svo mesta verðmætið, hefur selst á heila 150 þúsund dollara. The Federalist var safn ritgerða um stjórnarskrármál sem voru ritaðar af Alexander Hamilton, James Madison og John Jay á árunum 1787 og 1788.