fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Díana Óskarsdóttir skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 7. ágúst 2019 11:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Díönu Óskarsdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til næstu fimm ára. Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra  heilbrigðisstofnana. Sex sóttu um stöðuna.

Díana er með BS gráðu í geislafræði, meistarapróf í lýðheilsuvísindum og hefur að auki stundað nám í stjórnun og rekstri á sviði heilbrigðisþjónustu. Frá árinu 2015 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra á röntgendeild Landspítalans, samhliða lektorsstöðu við Háskólann í Reykjavík. Áður starfaði hún í sjö ár sem geislafræðingur hjá Hjartavernd auk þess að vera námsbrautarstjóri í lektorsstöðu við Háskóla Íslands í tíu ár. Díana hóf fyrst störf sem geislafræðingur árið 1990 og hefur frá þeim tíma meðal annars unnið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Landspítalanum og hjá Geislavörnum ríkisins.

Í mati hæfnisnefndar segir meðal annars að Díana hafi haldbæra reynslu af stjórnun og mannauðsmálum, hún geti sýnt fram á góðan árangur í breytingastjórnun við krefjandi aðstæður, þekking hennar á starfsemi sjúkrahúsa sé haldgóð og að hún hafi góða innsýn í stjórnsýslu, auk haldbærrar reynslu af samskiptum við opinbera aðila og fjölmiðla.

Díana tekur við embættinu af Herdísi Gunnarsdóttur sem hefur veitt Heilbrigðisstofnun Suðurlands forstöðu síðastliðin fimm ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki