Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir aðkomu Arnars Þórs Jónssonar, héraðsdómara, að umræðunni um þriðja orkupakkann, í grein sem birtist á Fréttablaðinu í dag og sakar hann um rangfærslur. Helga Vala bendir á að siðareglur dómara mæli eindregið gegn því að dómarar taki þátt í pólitískri umræðu og þó svo greinaskrif Arnars hafi upphaflega byrjað sem viðleitni til að upplýsa hafi þau í síauknum mæli einkennst af pólitískum áróðri.
„Arnar Þór hóf leiðangur sinn til upplýsingagjafar af hófsemi og fagmennsku en einhverra hluta vegna hefur, eftir því sem greinum hans fjölgar, örlað nokkuð á því að dómarinn sé orðinn beinn þátttakandi í pólitík því eins og dómarinn hefur ritað sjálfur er umræðan um O3[Orkupakki 3] farin að umbreytast í djúpstæða pólitíska krísu. Orð hans um valdagíruga menn, jafnvel í teinóttum jakkafötum, alríki og einræðisríki fá mann til að gruna að þar fari maður á leið í beina stjórnmálaþátttöku en ekki maður sem vill, á grunni sérfræðiþekkingar sinnar og stöðu sem héraðsdómari, láta taka mark á sér. Telur hann mikilvægt að taka þátt í þeim „pólitíska landskjálfta“ eins og hann orðar sjálfur, þrátt fyrir að siðareglur dómara mæli eindregið gegn því að dómarar hætti sér á þá braut.“
Ísland hefur í krafti fullveldis síns gert margvíslega samninga við önnur ríki, þeirra á meðal Sameinuðu Þjóðirnar, Mannréttindasáttmáli Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið. „Ofangreindur dómari hefur í greinarskrifum sínum bent á að Íslendingar hafi fremur verið móttakendur en þátttakendur þegar kemur að EES-samstarfinu og kann það vel að vera en það er nú svo að það er ekki á ábyrgð samstarfsaðila okkar heldur okkar sjálfra hafi svo verið.“
Helga Vala bendir á að þegar Ísland gekk til samninga við aðrar Evrópuþjóðir um frjálsa för fólks, vöru og þjónustu þá hafi Ísland engar breytingar gert á stjórnarskrá sinni. Það hafi verið ákvörðun íslenskra stjórnvalda, en ekki viðsemjenda. „Þannig er þetta heimatilbúið ástand sem hægt er að laga sé vilji fyrir hendi.“
Eðli EES-samningsins er þannig að reglugerðir og tilskipanir verði ekki að lögum eða komi til framkvæmda nema fyrir tilstilli Alþingis, Evrópugerðir hafa ekki bein réttaráhrif á Íslandi.
„Dómarinn hefur í greinum sínum einnig fett fingur út í það að við skulum horfa til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu, sem hefur ágreiningslaust leitt til ýmiss konar réttarbóta á Íslandi. Talar hann um að við séum með því samstarfi einhvers konar lén MDE án þess að við fáum þar rönd við reist! Ég verð að viðurkenna undrun mína á afstöðu dómarans til þessa virta og mikilvæga dómstóls.“
Helga Vala bendir Arnari á að það er ábyrgðarhlutverk að veita upplýsingar. Því hlutverki hafi Arnar brugðist.
„Það er ábyrgðarhluti að veita upplýsingar. Þannig hefur dómarinn því miður gerst sekur um að blanda saman vöru og framkvæmdum í orðum sínum. Hefur hann haldið því fram að lagning sæstrengs sé skilyrðislaus afleiðing innleiðingar O3 þegar honum er vel kunnugt um að hingað verður enginn strengur lagður án heimildar, ekki frekar en einhver „valdagírugur maður í teinóttum jakkafötum“ getur lagt hér veg þvert yfir landið þrátt fyrir skýr fyrirmæli um frjálsa för fólks. Við höfum áfram sem hingað til yfirráð yfir landi okkar og miðum og þannig verður það hvort sem af innleiðingu O3 verður eða ekki. Að lokum vil ég bjóða dómarann velkominn í pólitíkina. Hún getur verið ansi skemmtileg á köflum.“