fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Kolbrún segir siðanefnd Alþingis óþarfa: „Það þarf ekki siðanefnd til að segja fólki hvað því á að finnast um Klausturmálið“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 2. ágúst 2019 10:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Bergþórsdóttir tjáir sig um siðanefnd Alþingis í pistli sínum í Fréttablaðinu í dag. Hún segir það blasa við að þingmennirnir sem hæst töluðu á Klaustri hafi ekki verið sjálfum sér til sóma.

„Fólk veit yfirleitt hvenær það hefur farið illilega út af sporinu, en geri það sér ekki grein fyrir því eru margir reiðubúnir að láta það vita af því. Almenningsálitið hefur til dæmis kveðið upp sinn dóm í Klausturmálinu, fæstir vilja hafa í vinnu þingmenn sem haga sér eins og gert var á barnum. Siðferðiskennd fólks er alvarlega misboðið. Um leið má spyrja hvort einhver sérstök nauðsyn sé á niðurstöðu siðanefndar Alþingis í því máli. Það blasir við að þingmennirnir sem hæst töluðu á Klaustri voru sjálfum sér ekki til sóma það kvöld og þeir sem þar voru og lögðu blessun sína yfir orð þeirra með því að jánka eða þegja og gefa þannig samþykki sitt mega skammast sín og iðrast.“

Kolbrún segir að alþingismenn eigi að kunna að hegða sér enda séu þeir fulltrúar þjóðar sinnar. Hún segir að það þurfi ekki sérstaka siðanefnd til að skera úr um það hvort þeir eigi að falla í áliti hjá almenningi.

„Fyrst siðanefnd Alþingis var á annað borð að taka málið fyrir hlaut hún að komast að þeirri niðurstöðu að Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason hefðu gerst brotlegir við siðareglur alþingismanna. Alþingismenn eru fulltrúar þjóðar sinnar, þeir eiga að kunna að hegða sér og þegar þeir verða uppvísir að því að hafa klæmst tímunum saman og talað af fyrirlitningu um fólk þá hljóta þeir að falla í áliti hjá almenningi. Það þarf ekki sérstaka siðanefnd til að skera úr um það.“

Hún segir það vera að sumum þyki framferði þingmannana æði töff og segir klappið sem þeir fá á bakið vera furðulegt. 

„Merkilegi snúningurinn á þessu máli er hin fullkomna afneitun þingmanna á eigin framferði. Af ótrúlegri elju halda þeir áfram að benda í allar áttir en staldra ekki við og velta fyrir sér eigin ábyrgð. Þetta þykir reyndar sumum æði töff og veita framferðinu samþykki sitt með stuðningi við Miðflokkinn. Það er furðulegt klapp á bakið. Flestir hrökkva þó frá, áhyggjufullir vegna málefnaflutnings flokks þar sem einangrunarhyggja og tortryggni gagnvart umheiminum er við völd, ásamt tilheyrandi fordómum.“

Kolbrún segir að siðanefndin sé enn ein óþarfa nefndin. Hún gagnrýnir niðurstöðu siðanefndar í máli Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur.

„Þótt siðanefnd Alþingis hafi komist að sjálfsagðri niðurstöðu í Klausturmálinu þá má samt efast um erindi hennar. Satt best að segja virðist þessi siðanefnd vera enn ein óþörf nefndin. Henni eru greinilega mislagðar hendur eins og afgreiðsla hennar á máli Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, sýndi svo glöggt. Hún hafði uppi orð um hugsanlega spillingu í gjörðum Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Orð sem áttu fullan rétt á sér hlutu fordæmingu hjá siðanefnd. Þarna gerði siðanefnd ekkert gagn, þvert á móti tók hún sér stöðu með ritskoðun.“

Kolbrún segir siðanefndina gefa stjórnmálamönnum auðvelt færi á að koma höggi á pólitísku andstæðinga sína sem hafa valdið þeim vandræðum.

„Þingmenn mega taka djarflega til orða, og svo sannarlega er oft þörf á því. Með úrskurði sínum varðandi orð Þórhildar Sunnu opnaði siðanefndin á alls kyns klögumál þar sem stjórnmálamenn geta næsta auðveldlega náð sér niðri á pólitískum andstæðingum sem eru þeim til ama.„

Þingmenn eru sjálfir ábyrgir fyrir því að uppræta spillingu, hvort sem hana sé að finna á vinnustað þeirra, eða annars staðar.

Það þarf ekki siðanefnd Alþingis til að segja fólki hvað því á að finnast um Klausturmálið. Ekki verður heldur séð að þessi sama nefnd hafi þurft að funda og úrskurða á furðulegan hátt um orð þingmanns Pírata sem hafði áhyggjur af spillingu þingmanns. Þingmenn eiga að standa vaktina þegar kemur að því að uppræta spillingu, hvort sem hún leynist á Alþingi eða annars staðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn