Uppi hafa verið áform um að opna fyrir innflutning á lambakjöti vegna meints yfirvofandi kjötskorts. Ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara lagði þetta til við landbúnaðarráðherra í síðustu viku til að bregðast við skorti á lambahryggjum. Landbúnaðarráðherra hefur síðan óskað eftir því að nefndin endurmeti hvort þörf sé á því að opna fyrir innflutning vegna nýrra upplýsinga frá framleiðendum um birgðastöðu. Kaupfélag Skagfirðinga keypti eftir þetta tvö tonn af lambahryggjum frá Fjallalambi. Sjá nánar í frétt á Vísi.
Ásta F. Flosadóttir, sauðfjárbóndi á Höfða 1, er harðorð í grein sem um ritar um þetta efni á vefinn 641.is – Fréttir úr Þingeyjasýslu. Segir hún að á endanum muni neytendur greiða slíkan innflutning dýru verði:
„Eitthvað hafa kaupmenn lítið borgað fyrir þetta. En það er á hreinu hverjir fá að borga; neytendur munu greiða þetta dýru verði og við öll á endanum því þetta er ekkert annað en banatilræði við íslenska sauðfjárbændur. 2 ára gamalt kjöt, flutt eins langt að og hægt er með tilheyrandi kolefnisfótspori. Korter í að sláturtíð hefjist og enn nóg til af hryggjum í landinu.
Fíflagangurinn er orðin alveg yfirgengilegur. Forsmekkurinn af því sem koma skal þegar blautir draumar Félags stórkaupmanna (úlfurinn í þeirri sauðagæru sem kallað er „Samtök atvinnurekenda“) rætast. Þeir strjúka á sér belginn og hlakka yfir framtíðinni, framtíð fullri af hræódýrri, eldgamalli landbúnaðarvöru, fluttri inn í skjóli ístöðulausra pólitíkusa og seld almenningi í landinu dýrum dómum. Þá aldeilis verður hægt að græða á daginn og grilla rusl á kvöldin.“
Ásta segir að innflutningur sé tilræði við íslenska sauðfjárbændur:
„En sauðfjárbændum er ekki hlátur í hug. Það er engum skemmt að horfa á lífstarf sitt og afkomu tætta niður til að púkarnir á verslunarfjósbitunum geti fitað sig enn frekar, allt á kostnað sauðfjárbænda, neytenda og landsbyggðanna. Nú reynir á Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra að gefa ekki eftir þá litlu tollvernd sem við þó eigum til.
Og þið sláturleyfishafar; fyrir löngu síðan ættum við bændur að vera búin að lóga ykkur eins og hverri annarri vanþrifakind. Byggja upp úr rústunum sölusamtök sauðfjárbænda. Sölusamtök sauðfjárbænda með MS sem fyrirmynd. Það er komin tími til að við náum vopnum okkar og brjótumst undan ægivaldi verslunarinnar, ægivaldi sem er engum til hagsbóta og neytendum hvað síst.“