Bergþór Ólason segir hart að ummæli sín í einkasamtali þar sem hann hafi lýst óþægilegri kynferðislegri aðgangshörku þingkonu Samfylkingarinnar gegn sér séu notuð gegn honum í pólitískum réttarhöldum. Þetta kemur fram á vefritinu Viljanum í kvöld.
Varaforsætisnefnd fjallar nú um Klaustursmálið en á eftir að skila niðurstöðu. Það sem meðal annars hefur tafið niðurstöðuna eru andsvör Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, við erindi nefndarinnar. Í Klausturupptökunum má meðal annars heyra ummæli Bergþórs um Albertíu Elíasdóttur. Sagði Bergþór að hún hefði verið mjög ágeng við sig kynferðislega. Ummælin orkuðu á marga fjölmiðlaneytendur sem hlustuðu á upptökuna sem niðrandi ummæli um þingkonu, enda virtist glaðhlakkaleg stemning vera yfir samræðunum öllum.
Ljóst er að samkvæmt heimildum Viljans lítur Bergþór allt öðruvísi á málið. Segir hann hart að mega ekki skýra í einkasamtali frá slíkri áreitni án þess að það sé notað gegn honum í pólitískum réttarhöldum, byggt á ólöglegri upptöku. Þá segir í lok fréttar Viljans:
„Bergþór segir ennfremur að það hryggi sig ósegjanlega, að forsætisnefnd Alþingis ætli sér að nýta þann glæp til að refsa þolendum brotsins og um leið þolendum kynferðisbrota almennt.“