fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Sjálfstæðisflokkurinn logar

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 15. júlí 2019 14:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aukin harka hefur færst í deilurnar í Sjálfstæðisflokknum, sem hverfast ekki síst um Davíð Oddsson ritstjóra Morgunblaðsins og hárbeitt Reykjavíkurbréf hans. Mörgum brá þegar Þorkell Sigurlaugsson, áhrifamaður í viðskiptalífinu til margra ára og virkur í málefnastarfi Sjálfstæðisflokksins, tók upp pennann (eða lyklaborðið) um helgina og skrifaði afar harðorða grein um „höfund Reykjavíkurbréfs“ og dylst engum að skotum er beint að Davíð Oddssyni. Vandræðagangurinn innan flokksins eykst dag frá degi og kvíða margir flokksráðsfundi í lok september, enda deilur ekki gott veganesti inn í haustþing, þar sem orkupakkinn verður í sviðsljósinu, að uppgjör skuli vera framundan.  Ljóst er að margir munu fylgjast grannt með skoðanakönnunum næstu mánuðina. Enn er ekki að sjá að fylgisbreytingar séu miklar hjá Sjálfstæðisflokknum, en það gæti breyst fljótt ef sverð verða ekki slíðruð á næstunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki